Starfsmaður gegn stjórnsýsluhindrunum
Norski lögfræðingurinn Helge Kringstad hefur verið ráðinn sérlegur fulltrúi atvinnulífsins í baráttunni gegn stjórnsýsluhindrunum. Samstarfsráðherrar Norðurlanda og ráðherranefndin um atvinnu-, orku- og byggðamál réði hann til starfans fyrir atvinnulífið.
Markmiðið er að sjáanlegur árangur náist við framþróun Norðurlandanna sem sveigjanlegs og samkeppnishæfs atvinnusvæðis. Starfsmaðurinn mun beita sér fyrir þátttöku atvinnulífsins og annarra til að framkvæmdin verði eins árangursrík og mögulegt er.
Norðurlönd eiga að vera eitt atvinnusvæði og einn heimamarkaður þar sem atvinnumarkaður getur dafnað án hafta, auk þess að vera áhugavert landsvæði fyrir fjárfesta. Hnattvæðing og alþjóðleg samkeppni eykur nauðsyn þess að engin landamæri verði í samstarfi á Norðurlöndum.
Starfsmaður atvinnulífsins á að taka þátt í að móta viðhorf til breytinga með því að leggja pólitískan og stjórnræðislegan þrýsting á norræn stjórnvöld svo sameiginlegt markmið um afnám stjórnsýsluhindrana á landamærum nái fram að ganga.
