Document Actions

Stefnt að sameiginlegri sendiráðsbyggingu Norðurlanda í Reykjavík

Finnar, Svíar, Danir og Norðmenn hafa ákveðið að flytja sendiráð sín á Íslandi í sameiginlega sendiráðsbyggingu meða sama hætti og Norðurlöndin hafa gert í Berlín. Þetta kom fram á blaðamannafundi utanríkisráðherra Norðurlanda á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki í dag.

31/10 2012

Steingrímur J. Sigfússon tók þátt í fundi utanríkisráðherra Norðurlanda í fjarveru Össurs Skarphéðinssonar.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Embættismönnum hefur verið falið að undirbúa flutning sendiráðanna í sameiginlega byggingu og kynna tillögur um það á næsta fundi utanríkisráðherranna sem verður haldinn vorið 2013.

Sameiginleg sendiráðsbygging Norðurlanda í Berlín var opnuð árið 1999. Nú eru uppi áform um sams konar samstarf í ýmsum löndum.

Danmörk, Noregur og Svíþjóð ætla að opna sameiginlega sendiráðsbyggingu í Rangoon í Burma (Myanmar) í nóvember og í Dhaka í Bangladesh árið 2015. Norðmenn og Danir hyggja á sams konar samstarf í Íslamabad í Pakistan frá og með 2014 og Svíar, Norðmenn og Finnar stefna að því að opna sameiginlega sendiráðsbyggingu í Hanoi í Víetnam 2016.

Tengiliðir

Heidi Orava
Sími +45 21 71 71 48
Tölvupóstur heor@norden.org