Document Actions

Stjórnmálamenn bak við lás og slá

Miðvikudaginn 14. apríl heimsóttu norrænir þingmenn nýtt fangelsi í Halden í Noregi. Fulltrúar í borgara- og neytendanefnd Norðurlandaráðs skoðuðu fangelsið sem talið er eitt það nútímalegasta í Evrópu.

14/04 2010
Medborger- og forbrugerudvalget i Nordisk råd i Halden fængsel
Ljósmyndari
Are Høidal

„Allt of oft eru það sömu glæpamennirnir sem gista fangelsin aftur og aftur. Í því tilliti stendur Halden fangelsið framarlega en þar er sjónum beint að því að efla félagsfærni þeirra sem afplána dóma , hvort sem litið er til menntunar, starfa eða heilsueflingar, með það að markmiði að fyrirbyggja að þeir leiðist aftur út í glæpi. Þetta er gott bæði fyrir samfélagið í heild sinni og fyrir þá einstaklinga sem eiga í hlut“, segir Ville Niinistö formaður borgara- og neytendanefndarinnar.

Fulltrúar í nefndinni  geta nýtt sér þessa heimsókn þegar þeir taka afstöðu til þess hvort þeir eigi að hafa frumkvæði að  norrænum aðgerðum á sviði fangelsismála.

„Okkur fannst mjög áhugavert að skoða fangelsið og munum fylgjast með því í framtíðinni hvort hugmyndafræðin virki sem skyldi. Við munum fylgjast með því hvort glæpatíðni minnki og hvort þeim árangri sem að er stefnt verði náð“ segir Niinistö.

Heimsóknin í Halden fangelsið var farin í tengslum við aprílfundi Norðurlandaráðs, sem fram fóru í norska stórþinginu.