Document Actions

Stjórnmálamenn ræða norræna sjónvarpsstöð

Hugmyndir sem nýlega komu fram um nýja norræna sjónvarpsstöð vöktu mikla athygli. Nú vill menningar- og menntanefnd Norðurlandaráðs þróa hugmyndina áfram.

06/05 2010

Menningar- og menntanefndin hefur ákveðið að skipa vinnuhóp sem kanna á möguleikann á því að setja saman norræna sjónvarpsdagskrá. Jafnframt munu sérfræðingar kanna lagaleg, tæknileg og efnahagsleg úrlausnarefni.

Á fundi Norðulandaráðs í Ósló þann 14. apríl hélt menningar- og menntanefndin námstefnu um framtíðarsamstarf opinberra sjónvarpsstöðva á Norðurlöndum. Norðurlandaráð hefur ekki tekið ákvörðun um að stofna sameiginlega sjónvarpsstöð. Það er því verkefni ríkisstjórnanna að semja um slíka sjónvarpsstöð með fyrirmynd í þýsk-frönsku menningarsjónvarpsstöðinni Arte.

Þegar allt kemur til alls eru það ríkisstjórnir landanna sem taka sameiginlega ákvörðun um að stofna nýja sjónvarpsstöð. Þess vegna eru þingmenn áhugasamir um að skipast á skoðunum við forráðamenn ljósvakamiðla og ríkisrekinna sjónvarpa á Norðurlöndum um hvort mögulegt sé að taka upp nánara samstarf um sameiginlegar útsendingar.

Tengiliðir

Anne-Mette Persdotter
Sími +45 33 96 04 50
Tölvupóstur amp@norden.org

Tengt efni