Document Actions

Stöðugar breytingar í norrænni blaðamennsku

Bæjarblaðið Nerikes Allehanda í Svíþjóð er miðpunktur nýrrar Múhameðs-deilu. Hæfileiki norrænna blaðamanna til að vandal orðaval sitt hefur aldrei áður verið jafn mikið í brennidepli. Rætt verður um málið á 50 ára hátíðardagskrá Norrænu blaðamannamiðstöðvarinnar dagana 24. og 25. október í Árósum í Danmörku.

06/09 2007

Osama Al-Habahbeh sem flytur norrænar fréttir á arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera mun ræða um birtingarmynd menningarmuns í arabískum og skandinavískum fjölmiðlum eftir fyrstu Múhameðs-deiluna.

Afmælisráðstefnan er haldin í tilefni þess að Norræna blaðamannmiðstöðin hefur í 50 ár miðlað reynslu. Á ráðstefnunni verða fyrirlestrar, vinnustofur og umræðuvettvangar.