Document Actions

Stoltenberg: ”Norrænn herafli dregst aftur úr án samstarfs"

Norðurlöndin munu dragast aftur úr ef þau auka ekki varnarsamstarfið. Þetta er álit Thorvald Stoltenberg fyrrverandi varnarmálaráðherra Noregs. Stoltenberg, sem hefur starfað sem alþjóðlegur sáttasemjari, situr septemberfund Norðurlandaráðs. Hann minnir meðal annars á að kostnaður við kaup á hátæknivæddum vígtólum eykst sífellt.

29/09 2009
Martti Ahtisaari og Thorvald Stoltenberg

Martti Ahtisaari og Thorvald Stoltenberg

Ljósmyndari
Silje Bergum Kinsten/ norden.org

- Norrænu ríkin geta ekki viðhaldið núverandi gæðastaðli hjá herafla sínum án samstarfs og án þess að deila með sér kostnaði. Eftir 25 ár verðum við komin langt aftur úr stóru ríkjunum, til dæmis Frakklandi og Þýskalandi, sagði Stoltenberg á blaðamannafundi á þriðjudag.

Síðasta vor kynnti Stoltenberg skýrslu um aukið norrænt utanríkismála- og öryggissamstarf, til dæmis á sviði loftrýmisgæslu og innkaupa. Sinikka Bohlin, formaður Norðurlandaráðs og þingmaður á sænska þinginu, fór heldur varlegar í sakirnar í yfirlýsingu sinni um varnarsamstarf Norðurlandanna.

Heimur okkar breytist og það er eðlilegt að Norðurlandaráð fylgi einnig þróuninni.

- Heimur okkar breytist og það er eðlilegt að Norðurlandaráð fylgi einnig þróuninni. Við höfum þegar sett þjóðfélagsöryggi á oddinn. En hvernig og hvort við eigum að eiga samstarf um varnarmál verður framtíðin að leiða í ljós.

Myndband: Þetta getur Norðurlandaráð framkvæmt á sviði utanríkis- og öryggismála.

Varnar- og öryggismál eru af sögulegum ástæðum ekki með í hinu formlega norræna samstarfi. En Norðurlandaráð, sem er saman komið á haustfundi í Maríuihöfn, hefur samkvæmt Stoltenberg eitt verkefni - að halda lífi í umræðunni.

Stoltenber tók, ásamt Martti Ahtisaari fyrrverandi forseta Finnlands, einnig þátt í málþingi um hlutverk Norðurlandanna við lausn alþjóðlegra deilumála. Ahtisaari minnit á að Norðurlöndin hafa mikið að bjóða alþjóðasamfélaginuþegar á sviði átakalausna og friðargæslu.

- Við höfum gott orð á okkur út í hinum stóra heima og við höfum langa reynslu af samstarfi í alþjóðlegum samtökum, ekki síst á sviði þróunarastoðar, sagði Ahtisaari sem hlaut friðarverðlaun Nóbels í fyrra fyrir framlag sitt sem alþjóðlegur sáttasemjari í friðarviðræðum.

Han taldi einnig að Álandseyjar, sem hafa orðið þekktar sem Friðareyjar, gætu í auknum mæli verið vettvangur fyrir alþjóðlegra friðarumræður.

Stoltenbergskýrslan

Septemberfundir Norðurlandaráðs