Document Actions

Stórt verkefni að viðhalda lífsgæðum eldri borgara

-Við leggjum áherslu á það að eldri borgarar beri ábyrgð á eigin lífi eins lengi og kostur er, sagði Karen Ellemann, innanríkis- og félagsmálaráðherra Danmerkur, á fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn.

27/01 2010
Siv Friðleifsdóttir och Karen Ellemann

Karen Ellemann innanríkis- og félagsmálaráðherra Danmerkur og Siv Friðleifsdóttir formaður velferðarnefndarinnar.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Hún upplýsti nefndina um að í dönskum fjölmiðlum hefði kastljósinu verið beint að einkafyrirtækjum sem hefðu tekið að sér umönnun eldri borgara og ítrekaði að danska ríkisstjórnin vildi tryggja eldri borgurum bestu lífsgæði, meðal annars með því að veita hverjum og einum kost á að velja sér þjónustu.

Í Danmörku bera sveitarfélögin ábyrgð á umönnun eldri boragara, en Karen Ellemann sagði að með með þeirri ákvörðun að ábyrgjast umönnunarpláss fyrir alla á er þyrftu að halda, hefði skapast tækifæri fyrir einkaaðila að stofna og reka umönnunarstofnanir fyrir eldri borgara. Umönnunarábyrgðin feli í sér að allir eldri borgarar sem hafa farið í gegnum matsferli eigi að fá tilboð um umönnun innan tveggja mánaða.

Ráðherrann undirstrikaði að þessi ábyrgð hefði leitt til mikillar aukningar á vistunarúrræðum og að vel gengi að hætta rekstri í í gömlum og úreltum byggingum.

Siv Friðleifsdóttir, formaður velferðarnefndarinnar, lýsti því yfir að upplífgandi væri að heyra um hvernig staðið væri að umönnun aldraðra í Danmörku.

-Ég er undrandi að heyra að allir sem orðnir eru 75 ára fái tilboð um heimsókn frá sveitarfélaginu árlega og að tryggt sé að þeir fái tilboð um vistun innan tveggja mánaða sagði hún.

 

Lífsgæði aldraðra er meginþema velferðarnefndarinnar árið 2010. Danski ráðherrann útskýrði að vegna fjölgunar aldraðra á komandi árum, yrði það stórt verkefni að viðhalda góðum lífsgæðum þeirra í framtíðinni, ekki einungis í Danmörku heldur hvatvetna á Norðurlöndum.

 

Ráðherran sagði að danska ríkisstjórnin vildi tryggja öldruðum aukin lífsgæði með því að leggja áherslu á velferðartækni, þ.e. þróun tæknilausna með það að markmiði að spara fjármagn og mannafla og tryggja að aldraðir fái aukin tækifæri til að hugsa um sig sjálfir eins lengi og mögulegt er.

Að auki vilja menn leggja mun meiri áherslu á forvarnir með aukinni hreyfingu og heilbrigðari lífsstíl, þannig að aldraðir geti verið sjálfbjarga eins lengi og kostur er.