Document Actions

Styrkir til kvikmyndagerðar og tónlistar í Tromsø

Norræni menningarsjóðurinn hefur úthlutað 100.000 dönskum krónum í styrk til verkefnisins "Þöglir kvikmyndadagar í Tromsø", sem er stutt þriggja daga kvikmyndahátíð sem haldin verður í september. Það er alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Tromsø sem skipuleggur hátíðina.

21/06 2007

Sýndar verða gamlar þöglar kvikmyndir við undirleik í kvikmyndahúsinu Verdensteatret í Tromsø, en húsið er friðað, byggt árið 1915. Á dagskrá verða 9 einstakar sýningar þar sem megináhersla verður á norrænar kvikmyndir og norræna tónlist.

Á hátíðinni verða sýndar mikilvægar myndir í kvikmyndasögunni sem ekki hafa fengið verðuga athygli. Verkefnið er nýstárlegt þar sem um kvikmyndahátíð er að ræða, en jafnframt sögulegt þar sem sýningarnar verða í kvikmyndahúsi sem byggt var til að sýna þöglar kvikmyndir með tónlistarundirleik. Umsjónarmenn hátíðarinnar vilja með þessu skapa vettvang fyrir þöglar, norrænar kvikmyndir og norræna tónlist við þær.

Gerð nýrrar tónlistar við hefðbundnar kvikmyndir hefur rutt sér til rúms síðasta áratug og fjölmörg slík gæðaverkefni eru þegar í gangi á Norðurlöndum. Norræn verkefni vekja athygli erlendis á mikilsmetnum hátíðum til að mynda í Pordenone og Bologna.

Að mati hátíðarhaldara er það áskorun þegar samtímatónlistarmenn semja tónlist við sígild kvikmyndaverk. Þetta verður einstök heildarupplifun í samspili fortíðar og samtímans, og tónlistar og kvikmyndar sem ekki fæst á annað hátt.
´
Á kvikmyndahátíðinni í Tromsö verða sýndar myndir frá Midnight Sun Film Festival í Sodankylä í Finnlandi og Cinematek hjá Sænsku kvikmyndastofnuninni auk mynda frá Noregi.

Þar sem þöglar kvikmyndir í Noregi voru gerðar í samvinnu við aðra og í samstarfi við aðrar þjóðir, annst okkur tilvalið að leita yfir landamæri að myndum til að sýna. Þegar kvikmyndum hefur verið safnað saman á einn stað frá Norðurlöndum, verður einnig auðveldara fyrir alþjóðasamfélagið að átta sig á stöðunni, segir í kynningu á hátíðinni.

Þöglir kvikmyndadagar í Tromsø mun laða marga að. Tónlistamenn sem fram koma eru Mari Boine með hljómsveit frá Noregi, Matti Bye og Panoptikon hljómsveit hans frá Svíþjóð, Cleaning Women frá Finnlandi, Turdus Musicus frá Tromsø, Johan Sara Jr. Og Geir Lysne frá Noregi. Markhópur hátíðarinnar er áhugafólk á öllum aldri um kvikmyndir og tónlist, en auk þess verður boðið til sérstakrar dagskrár fyrir börn og unglinga.