Svante Henryson hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs

27.10.15 | Fréttir
Vinder af Nordisk Råds musikpris 2015
Photographer
Johannes Jansson/norden.org
Sænski sellóleikarinn, bassaleikarinn og tónskáldið Svante Henryson hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs á verðlaunahátíð Norðurlandaráðs í Reykjavík.

Verðlaunahafi síðasta árs, Simon Steen-Andersen, afhenti Svante Henryson verðlaunagripinn „Nordlys“ og verðlaunaféð, 350 þúsund danskar krónur.

Rökstuðningur

Hinn sænski Svante Henryson, sellóleikari, bassaleikari og tónskáld, hefur sýnt einstaka sköpunargáfu og þróað afburðatækni á sérsviðum sínum á viðburðaríkum tónlistarferli. Hann hefur alla tíð sýnt mikinn metnað – fyrst sem ungur kontrabassaleikari og meðlimur Fílharmóníuhljómsveitar Óslóar og síðar sem rafbassaleikari í rokkhljómsveit Yngwies Malmstens, uns hann hóf að kanna klassískan sellóleik upp á eigin spýtur. Í dag er hann virkur sem bæði tónskáld og tónlistarmaður og verk hans spanna allt frá tónlist í anda Samamenningar Norður-Noregs til einleikssónata fyrir fiðlu. Vegna færni sinnar á þrjú mismunandi hljóðfæri er Svante Henryson eftirsóttur sem spilafélagi af besta tónlistarfólki samtímans, bæði á sviði djasstónlistar og sígildrar tónlistar. 

Nánari upplýsingar um Svante Henryson á heimasíðu tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs

Nánari upplýsingar um verðlaun Norðurlandaráðs