Document Actions

Svíinn Mats Gustafsson fær Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2011

Sænski saxófónleikarinn og tónskáldið Mats Gustafsson hlýtur Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2011.

Jun 01, 2011
Mats Gustafsson

Mats Gustafsson hlýtur hin eftirsóttu tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2011.

Ljósmyndari
Cato Lein

Mats Gustafsson (1964) hefur um árabil verið þekkt nafn á sviði spunatónlistar og hlýtur nú hin eftirsóttu tónlistarverðlaun 2011.

Rökstuðningur dómnefndar:

„Mats Gustafsson hefur í rúma tvo áratugi verið eitt af stóru nöfnunum á sviði spunatónlistar. Með nýskapandi saxófónleik leitar hann stöðugt út fyrir ramma þeirra skilgreininga sem við notum til að flokka þá tónlist sem við höfum ekki heyrt áður.

Óháð því hvort hann vinnur í framúrstefnuheimi Peter Brötzmann Chicago Tentet, eða í pönktríóinu The Thing, er Mats til staðar í afdráttarlausri túlkun, algjörri nærveru, með eftirtektarverða orku og mikla tilfinningu fyrir meðleikurum sínum.

Mats endurnýjar ekki eingöngu tjáningarform saxófónsins, hann enduruppgötvar það og skapar nýjan tónlistarheim milli tónanna og bak við hávaðann. Í tónleikahaldi er Mats jafn aðsópsmikill og ófyrirsjáanlegur og plötuútgáfa hans, en hann hefur gefið út meira en 200 plötur. Við mælum með því að þið opnið hjörtu ykkar og látið hrífast af tónlistarheimi Mats Gustafsson.“

Þema tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2011 er:

„Tónlistarmaður (hljóðfæraleikari eða söngvari), sem hefur stuðlað að nýsköpun í tónlist þar sem spuni er lykilatriði og sköpun viðkomandi er mikilvæg fyrir form, hljóm og samhengi í tónlistarlegri tjáningu. Hinn tilnefndi skal hafa vakið athygli í norrænu eða alþjóðlegu tónlistarlífi á síðasta ári (2010)”

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs eru 350.000 danskar krónur. Verðlaunin verða afhent Mats Gustafsson á Norðurlandaráðsþingi í Kaupmannahöfn í byrjun nóvember.

Nánari upplýsingar á vefsíðu tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs.

Tengiliðir

Urd Johannesen
Sími +298 223010
Tölvupóstur urd@nlh.fo

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org

Tengt efni
  • Tólf tilnefndir til Norrænu tónlistarverðlaunanna 2011 (News Item)

    Tilnefningar til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs hafa verið gerðar opinberar.

  • Um tónlistarverðlaunin

    Tónlistarverðlaunum Norðurlandaráðs er ætlað að vekja athygli á tónlistarsköpun og tónlistarflutningi sem telst hafa mikið listrænt gildi. Annað hvert ár eru verðlaunin veitt fyrir tónverk eftir núlifandi tónskáld og annað hvert ár stórri eða lítilli hljómsveit.