Document Actions

Svíþjóð bregst norrænu tungumálunum

Öll Norðurlöndin, nema Svíþjóð, hafa gert átak í að auka kunnáttu í norðurlandatungumálunum. Norðurlandaráð hvetur sænsku ríkisstjórnina til að styrkja kennslu í nágrannatungumálum í samræmi við Norrænu tungumálayfirlýsinguna.

29/10 2009

Norræna tungumálasamstarfið var til umræðu á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi í tengslum við skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar um stöðu mála hvað varðar Norrænu tungumálayfirlýsinguna.

Í skýrslunni kemur fram að öll norrænu ríkin, nema Svíþjóð, hafi fylgt ábendingum sem fram koma í yfirlýsingunni eftir, um að styrkja kennslu í norrænum tungumálum.

„Það er mikilvægt að viðhalda kunnáttu í norrænum tungumálum á tímum hnattvæðingar. það ætti að vera sjálfsagt fyrir okkur Norðurlandabúa, að skilja hvern annan, en það er vandamál, sérstaklega fyrir unga fólkið", sagði Bente Dahl varaformaður menningar- og menntamálanefndarinnar, sem hvatti Svíþjóð sérstaklega til að taka á málinu.

Hún þakkaði Danmörku fyrir að beina sjónum að tungumálasviðinu í tengslum við formennsku Dana í Norrænu ráðherranefndinni árið 2010, en þá mun ráðherranefndin setja af stað tungumálaherferð til að auka kunnáttu í norrænum tungumálum meða barna og ungs fólks.