Document Actions

Takið ábyrgð á umhverfisástandi Norðurskautsins

Norrænar þjóðir bera sérstaka ábyrgð á umhverfisvernd á Norðurskautinu. Vísindamenn mæla nú mikla loftmengun þar og hefur hún borist með loftstraumum úr fjarlægum heimshornum. Til að mynda berst kvikasilfur frá kolakyndingum í Kína og Indlandi. Þetta er haft eftir Lars Moseholm, fulltrúa í norræna vinnuhópnum um haf- og loftslagsmál.

14/08 2007

Loftmengun berst með loftstraumum til norðurslóða, til að mynda til Grænlands og annarra viðkvæmra heimskautssvæða. Þetta er vandamál sem taka verður á í norrænni samvinnu.
Vísindamenn hafa einnig aflað viðamikillar þekkingar um það hvernig mengunin berst milli heimsálfa.
Þeir hafa áhyggjur af því að loftslagsbreytingar á jörðinni muni hafa í för með sér enn frekari mengun á norðurslóðum. Það fari eftir því hvort loftstraumar og há- og lágþrýstingur yfir álfunum muni breytast um leið og loftslagið. Ef t.d. færi svo að Golfstraumurinn breyttist er hætta á að loftstraumar í andrúmsloftinu færist norðar. Það myndi leiða til að enn meiri loftmengu bærist til Grænlands og Norðurskautsins. Þetta er vandamál sem Norðurlöndin vilja taka á, áður en það verður um seinan.

Þrátt fyrir langt og árangursríkt norrænt samstarf í rannsóknum á loftmengun takmarkast þekkingin og starfið alfarið við Norðurlönd. Hafið ritið "Hreint loft í lungun" til hliðsjónar. Við gáfum það út til að varpa ljósi á loftgæðavandann og leggja til lausnir.

Norræni loftslagshópurinn var settur á laggirnar árið 1983, sem þáttur í starfsemi ráðherranefndarinnar, en norræni vinnuhópurinn um haf og andrúmsloft var settur á laggirnar árið 1993. Norrænt samstarf í umhverfismálum frá 1980 og fram til ársins 2000 hefur skipt miklu máli. Markmið þess er að draga úr loftmengun, þannig að hún fari ekki yfir hættumörk og umhverfi og heilsu fólks sé stefnt í voða.