Document Actions

Tammerfors í Finnlandi útnefnt norrænt loftslagssveitarfélag

Sveitarfélagið Tampere í Finnlandi er sigurvegari í norrænni samkeppni um bestu staðbundnu loftslagslausnina. Sveitarfélagið hlýtur viðurkenningu fyrir langtímaskipulag og þverfaglegt samstarf. Verðlaunin voru afhent á sjálfbærniráðstefnunni "Lausnir" (”Løsninger”) í Åbo þann 1. febrúar.

02/02 2011
Solceller

Sveitarfélagið Tampere hlaut verðlaun fyrir bestu staðbundnu loftslagslausn á Norðurlöndum fyrir langtíma loftslagsstefnu, sem meðal annars leggur áherslu á sólarorku.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

- Nú er búið að tala nóg, sagði Johhny Åkerholm, framkvæmdastjóri Norræna fjárfestingabankans, í ræðu sinni við afhendingu verðlauna fyrir bestu norrænu loftslagslausnirnar.

Markmiðið með samkeppninni, sem var styrkt af Norrænu ráðherranefndinni, var að finna bestu staðbundnu lausnirnar til að sporna gegn loftslagsbreytingum og áttu þær að vera raunhæfar og metnaðarfullar aðgerðir og helst ná til margra starfsgreina og svæða.

Annar tveggja verðlaunahafa er sveitarfélagið Tampere sem hlaut verðlaun fyrir verkefnið ECO2 projekt, langtímastefnu til að skapa heildarlausnir á loftslagsvanda sveitarfélagsins og virkja starf sveitarfélags, atvinnulífs, frjálsra félagasamtaka og menntastofnana á svæðinu.

Verkefnið fjallar m.a. um borgarskipulag og nýbyggingar, orku og umferð og ekki síst verkefni á sviði umhverfisverndar með þátttöku íbúanna.

- Loftslagsstarfið er ávallt spurning um samstarf og þessi verðlaun munu verða öllum hvatning sem taka þátt í verkefninu okkar, sagði Pauli Välimäki verkefnisstjóri í þakkarræðu sinni.

Västernorrland í Svíþjóð og fyrirtækið Snowpower deildu verðlaununum með Tampere, og hlutu þau verðlaunin fyrir snjókælingarverkefni sem geymir snjó frá vetrinum og notar hann til að kæla hús í sumarhitanum.

Tæknin hefur verið notuð með góðum árangri á Sundsvall svæðissjúkrahúsinu, sem hefur minnkað raforkunotkun um 90% frá því byrjað var að nota tæknina.

 

Samkeppnin var skipulögð af samtökum sveitarfélaga í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina. Hún lagði mat á tillögur frá fyrirtækjum, samtökum og sveitarfélögum. Alls bárust 78 tillögur frá sveitarfélögum í sjö löndum.

Í dómnefndinni sátu m.a. fulltrúar Norræna fjárfestingabankans, Norrænu nýsköpunarmiðstövarinnar (NICe) og Norræna umhverfisfjárfestingafélagsins (Nefco).

Tengiliðir

Michael Funch
Sími +45 33960332
Tölvupóstur mifu@norden.org

Paili Välimäki +358 40 801 6035 pauli.valimaki@tampere.fi

Kjell Skogsberg kjell.skogsberg@snowpower.se

Tengt efni
  • Karlar halla sér að slátraranum, konur að jarðargróðri (News Item)

    Karlar skaða umhverfið meira en konur, sérstaklega þegar litið er til neysluvenja þeirra. Þetta er ein af niðurstöðum norrænu ráðstefnunnar um sjálfbærni „Lausnum" sem haldin var í Åbo þann 1. febrúar. Norræna ráðherranefndin hefur talað fyrir því á alþjóðavettvangi að tekið verði tillit til kynjasjónarmiða í loftslagssamningum.

  • Við höfum ráð á því að ráðast gegn loftslagsvandanum (News Item)

    Þetta segja ungmenni sem tóku þátt í umræðum um Norræna loftslagsdaginn, sem efnt var til samhliða ráðstefnunni „Lausnir - þétt saman" í Åbo. Fundargestir brugðust við efasemdum og bollaleggingum ungmenna um hve mikil áhrif Norðurlandabúar gætu haft á loftslagsmálin samanborið við Kínverja og Indverja. Margir höfðu mjög ákveðnar skoðanir um það hvernig krafan um sífelldan hagvöxt vinnur gegn markmiðum í umhverfismálum.

  • Sjálfbærni ekki tekin út með sældinni (News Item)

    Stjórnmálamenn vilja hagvöxt, íbúarnir hófsemd. Allavega ef marka má skoðanir gesta á fjölsóttri norrænni ráðstefnu um sjálfbærni sem haldin var í Åbo í Finnlandi 2. febrúar, undir yfirskriftinni „Lausnir“. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, benti á starfsemi íslensku grænfánaskólana og sagði nauðsynlegt að efla siðferði og styrkja langtímaskipulag, það væru undirstöður stefnumörkunar í umhverfismálum til framtíðar.

  • Lausnir í nánd, saman - ráðstefna um sjálfbærni á Eystrasaltssvæðinu (Event)

    Tilgangur ráðstefnunnar er að tryggja samspil efnahags- og félagslegra sjónarmiða og umhverfissjónarmiða með það að markmiði að finna lausnir sem hagnast öllum jafnt svæðisbundnum stjórnvöldur, samféalginu og íbúum. Í dagskrá ráðstefnunnar verður sjónum beint að því hvernig þekking, hugmyndir, viðhorf og framleiðsla geta stuðlað að sjálfbærum ferlum.

  • Nyckelordet för Östersjöns räddning är samarbete (News Item)

    Så uttryckte sig Finlands statsminister Mari Kiviniemi när hon öppnade så väl Finlands ordförandeskapsår i Nordiska Ministerrådet som konferensen "Lösningar - nära, tillsammans" om hållbar utveckling i Åbo den 31 januari. Kiviniemi talade för en publik på nästan 600 personer från 19 länder.