Document Actions

Þátttaka barna og ungs fólks gríðarlega mikilvæg fyrir Norðurlönd

Stuðla þarf að aukinni þátttöku barna og æskufólks í norrænu samstarfi. Því þarf að leggja meiri áherslu á norrænan málskilning, ekki síst í Finnlandi. Þetta er eitt af þeim forgangsmálum sem Jan Vapaavuori kynnti í formennskuáætlun Finna í Norrænu ráðherranefndinni á janúarfundi Norðurlandaráðs í Esbo í Finnlandi

26/01 2011
Jan Vapaavuori
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

– Í sífellt hnattvæddari heimi hafa norræn gildi og samstarf orðið mikilvægari, sagði Jan Vapaavuori í upphafi kynningar sinnar á formennskuáætlun Finna í Norrænu ráðheranefndinni.

Meðal þeirra mála sem formennskuáætlunin fjallar um eru viðbrögð við loftslagsbreytingum, áframhald á vinnu við svokallað hnattvæðingarferli, þátttaka barna og ungmenna í norrænum málefnum og samstarf við grannsvæðin

Á Norðurlöndum er bæði geta og pólitískur vilji til að sporna gegn loftslagsbreytingum. Norrænt samstarf gerir okkur kleyft að vera í fararbroddi, einnig á alþjóðavettvangi. Liður í þessu starfi er loftslagsráðstefna sem haldin verður í haust í samstarfi við Aalto-háskóla. Norræna hnattvæðingaráætlunin sem áfram verður unnið að á þessu ári styður einnig við samstarfið um loftslagsmál.

Norrænt samstarf á þessu sviði stuðlar að því að Norðurlönd verði leiðandi á sviði nýsköpunar og dæmi um það er öndvegisrannsóknaáætlunin, stærsta norræna samstarfsverkefnið nokkru sinni, sagði Vapaavuori.

Nordplus, Nordjobb, Nordic Master og tungumálaherferðin eru dæmi um verkefni fyrir börn og ungt fólk sem Finnar leggja áherslu á að unnið verði að á formennskutímanum Menningarsamstarfið er einnig forgangsmál og kemur það m.a. í ljós í metnaðarfullri þátttöku Norðurlanda á bókasýningunni í París í mars.

Vapaavuori nefndi einnig samstarfið við grannsvæðin sem eitt af þeim málum sem yrðu í forgangi á formennskutímanum Og sagði það afar mikilvægt frá samfélags-, umhverfis- og efnahagslegu sjónarmiði.

Í fyrirspurnatíma eftir kynningu á formennskuáætluninni gagnrýndi Martin Kolberg úr flokkahópi jafnaðarmanna Norrænu ráðherranefndina fyrir að fjalla ekki nægilega fljótt um þau mál sem samþykkt væru í Norðurlandaráði. Hann nefndi t.d. að Norðurlandaráð hefði verið sammála um að stuðla að því að koma upp sameiginlegu norrænu skilagjaldi en að Norræna ráðherranefndin hefði með engu móti fylgt málinu eftir. Vapaavuori svaraði því til að hann þekkti ekki málið en skyldi ræða það á næsta fundi með Norðurlandaráði.

Norðurlandaráð heldur janúarfundi sína í Esbo í Finnlandi, dagana 25.26. janúar.