Document Actions

Þekking skólabarna könnuð á Norræna loftslagsdeginum

Í tilefni af Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember, stendur Norræna ráðherranefndin fyrir sameiginlegum loftslagsdegi fyrir skólabörn á Norðurlöndum þann 11. nóvember. Nemendurnir taka þátt í því sem e.t.v verður stærsta sms-keppni í heimi og koma með tillögur um hvernig hægt er að leysa loftslagsvandann þar sem þeir búa.

10/11 2009

Það eru norrænu menntamálaráðherrarnir, sem standa að loftslagsdeginum. Markmiðið er að efla samstarf um kennslu í loftslagsmálum á Norðurlöndum og auka þátttöku nemenda í lausn loftslagsvandans.

Það er meðal annars gert með vefgáttinni klimanorden.org og með umfangsmikilli sms-keppni.

„Mikilvægt er að vekja áhuga unga fólksins á loftslagsmálum eins snemma og hægt er. Það er unga fólkið sem tekur við og verðum að finna lausnir til framtíðar. Með norræna loftslagsdeginum er verið að leggja áherslu  á fræðslu um loftslagsmál“, segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.

Á Norræna loftslagsdeginum verður  ýtt úr vör einu stærsta sms-kennsluverkefni í heiminum hingað til.

Hluti af verkefninu er meðal annars Norræna loftslagsferðin, þar sem ungt fólk frá öllum norrænu ríkjunum varpar fram hugmyndum um hvernig loftslagsvandanum er best  lýst, með hljóði, kvikmyndum texta og myndum.

Þar að auki eiga nemendurnir að svara spurningum um loftslags- og umhverfisvandamál, en þetta eru tvö af þeim málum sem eru Norrænu ráðherranefndinni sérstaklega hugleikin.

Rúmlega 150 skólar á Norðurlöndum taka þátt í verkefninu og mörg þúsund nemendur geta reynt kunnáttu sína á loftslagsmálum í aðdraganda loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember.

Tengiliðir

Michael Funch
Sími +45 33960332
Tölvupóstur mifu@norden.org

Marianne Neraal
Sími +45 33 96 03 83
Tölvupóstur mane@norden.org

Tengt efni
  • Norræna ráðherranefndin um menntun og rannsóknir (MR-U) (Samtök)

    Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um rannsóknir og menntun er stjórnað af norrænu ráðherrunum sem fara með málefni menntamála og rannsókna, saman mynda þeir MR-U. Ráðherranefndin vinnur að því að Norðurlöndin verði í fararbroddi hvað varðar þekkingu og samkeppnishæfni.