Document Actions

Þekkingarstörf til Norðurlanda

14/02 2005

„Outsourcing” sem er þegar verkefni eru flutt til samkeppnishæfari svæða er hugtak sem við oft tengjum, á neikvæðan hátt, því að störf flytjist frá Norðurlöndunum.

„Outsourcing” og andstaða þess sem kalla mætti „insourcing” eru ferlar sem gera að láglaunastörf flytjast, þá helst til Asíu en störf sem krefjast mikillar þekkingar og sem tengjast störfum í t.d. líftækni eða þróun vistvænnar orku flytjast til Norðurlandanna.

Norræna ráðherranefndin, Norðurlandaráð og Norræna nýsköpunarmiðstöðin standa sameiginlega að ráðstefnu undir heitinu „Global Outsourcing – Nordic Insourcing”, þar sem fjallað verður um hvernig bregðast eigi við þróun alþjóðaefnahagsmála okkur í vil. Ráðstefnan verður haldin í Kaupmannahöfn dagana 10. – 11. maí n.k.