Þemaþingi Norðurlandaráðs í Brussel aflýst

17.02.15 | Fréttir
EU og Norden
Photographer
Silje Bergum Kinsten/norden.org
Vegna aukins öryggisviðbúnaðar í Belgíu og þar með í Evrópuþinginu hefur forseti Norðurlandaráðs ákveðið að aflýsa þingi ráðsins í Brussel.
„Að loknum nánum viðræðum við Evrópuþingið um hvaða áhrif þetta hefur er niðurstaðan sú að í ljósi mikillar óvissu um hvort þemaþingið geti orðið að veruleka, sé ekki forsvaranlegt að halda skipulagningu þess áfram,“ segir Höskuldur Þórhallsson, forseti Norðurlandaráðs 2015.