Atvinnuleysi ungs fólks er ef til vill stærsta úrlausnarefni samtímans, og þörf er á samstarfi þvert á landamæri og stjórnmálaflokka. Norðurlandaráð vill því að gerð verði skýrsla um nýjar aðgerðir til að sporna við atvinnuleysi ungs fólks fyrir Norðurlandaráðsþing í október, segir Marit Nybakk forseti ráðsins.
Marit Nybakk (önnur frá vinstri) hitti norrænu forsætisráðherrana í Stokkhólmi á fimmtudag.
Marit Nybakk fundaði á fimmtudag með norrænu forsætisráðherrunum í tengslum við norrænan vinnumarkaðsfund um ungt fólk í Stokkhólmi, þar sem hún ræddi hvernig hægt væri að fjölga atvinnutækifærum ungs fólks með sameiginlegu norrænu átaki.
Norðurlandaráð vill meðal annars að Norræna ráðherranefndin samþykki og setji af stað norrænar aðgerðir til að stemma stigu við auknu atvinnuleysi ungs fólks.
„Það er mjög mikilvægt að Svíar sem fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni leggi áherslu á þessa umræðu. Ég vona að við getum skipulagt aðgerðir á norrænum vettvangi sem geta minnkað atvinnuleysi ungs fólks á Norðurlöndum og mögulega verða fyrirmynd annarra ríkja“, sagði Nybakk.
Norðurlandaráð er með fjölmargar ábendingar til Norrænu ráðherranefndarinnar og ríkisstjórna Norðurlandanna um atvinnuleysi ungs fólks. Meðal annars vill ráðið láta kortleggja og nýta norræna reynslu af aðgerðum á sviði menntunar og vinnumarkaðsstefnu sem miða að því að minnka atvinnuleysi ungs fólks.
„Við verðum einnig að kortleggja og miðla aðferðum sem geta tengt sveitarfélög, menntastofnanir og fyrirtæki til þess að þau geti unnið saman að sérsniðnum menntunar og kennslulausnum“, sagði Nybakk.
Heidi Orava
Sími
+45 21 71 71 48
Tölvupóstur
heor@norden.org