Þríhliða fundur með framkvæmdastjórn ESB á Íslandi
Hvernig getur atvinnustefna norrænu ríkjanna stuðlað að því að efla færni vinnandi fólks svo uppfylla megi kröfur vinnumarkaðarins? Hvernig geta Norðurlönd unnið að þeim markmiðum á samdráttartímum?
- Markmið fundarins er að ræða hvernig við getum, einnig á krepputímum, eflt hæfniþróun í samræmi við þarfir vinnumarkaðarins, segir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra.
- Ljósmyndari
- Silje Bergum Kinsten/norden.org
Leitað verður svara við þessum spurningum á fundi norrænu atvinnumálaráherranna með Vladimir Spidla sem fer með atvinnumál í framkvæmdastjórn ESB. Fulltrúar a norrænna vinnuveitenda og launþega munu einnig sitja fundinn sem haldinn er á á Íslandi 10. nóvember.
Þetta er í fyrsta sinn í rúmlega fimm ár sem norrænu atvinnumálaráðherrarnir hitta aðila norræna vinnumarkaðarins og eiga viðræður að stuðla að því að efla þríhliða norrænt samstarf.
Fundurinn verður haldinn í tengslum við árlegan fund Norrænu ráðherranefndarinnar um atvinnulíf þann 11. nóvember.
Atvinnuleysi eykst hratt um alla Evrópu. Ungt fólk verður sérstaklega fyrir barðinu á atvinnuleysi.
Kreppan þrengir að samkeppnishæfni og opinberum rekstri og vaxandi kröfur eru um samræmdar aðgerðir í löndunum og samstarf þvert á landamæri. Atvinnulífið hefur ekki síst hag af því að bæta aðlögunar- og atvinnuhæfni starfandi fólks.
- Markmið fundarins er að ræða hvernig við getum, einnig á krepputímum, eflt hæfniþróun vinnandi fólks og komið til móts við þarfir atvinnumarkaðarins. Þar með getum við bætt tækifæri launþegans til að fá atvinnu og tækifæri atvinnulífsins til að ráða þann starfskraft sem þörf er á í landinu, segir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra.
Umræðan fer fram á grundvelli nýrrar skýrslu: ”De nordiske landes konkurrencedygtighed – fra flexicurity til mobication” eftir Søren Kaj Andersen fræðimanns við Hafnarháskóla og Ove Kaj Pedersen frá CBS.
Skýrslan greinir hvernig hægt er með kerfisbundnum hætti að auka hreyfanleika vinnandi fólks á vinnumarkaði með því að gera færniþróun að þungamiðju atvinnustefnunnar.
Vladimir Spidla, sem fer með atvinnumál í framkvæmdastjórn ESB, tekur einnig þátt í umræðum á fundinum um sjónarmið ESB: "Ný færni fyrir ný störf".
Í yfirlýsinguer bent á fjölmargar aðgerðir sem framkvæmdastjórnin hyggst setja af stað til þess að stuðla að betra samspili framboðs og eftirspurnar á starfskröftum.
Báðar skýrslur benda á mikilvægi þess að aðgerðir á krepputímum megi ekki hamla því að að tekið verði á úrlausnarefnum framtíðarinnar á vinnumarkaði.
Hnattvæðingin og lýðfræðileg þróun mun þannig auka samkeppni um sífellt færra fólk á vinnumarkaði, , sem til lengri tíma litið gæti grafið undan norræna velferðarkerfinu, verði ekki gripið til aðgerða.
Að loknum umræðum ráðherra, aðilum vinnumarkaðarins og og framkvæmdastjórans verður fundur í Norrænu ráðherranefninni um atvinnulíf þann 11. nóvember þar sem áhersla verður á aðgerðir til að sporna gegn vaxandi atvinnleysi ungs fólks.
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
Lars Djernæs
Sími
+45 33960360
Tölvupóstur
ldj@norden.org
