Document Actions

Þrjár bækur tilnefndar til vestnorrænu barnabókaverðlaunanna

Í sjötta sinn eru nú þrjár bækur tilnefndar til barna- og unglingabókaverðlauna Vestur-Norðurlandaráðs, þ.e. ein bók frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Bókmenntaverðlaunin eru veitt annað hvert ár og eru 60.000 danskar krónur.

Dec 07, 2011
Ungdommar
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

 

Grænlenska dómnefndin fyrir árið 2012 tilnefndi bókina Kaassalimik oqaluttuaq (Sagan af Kaassali) eftir Lars-Pele Berthelsen og myndskreytt af Pia Falck Pape.

Færeyska dómnefndin tilnefndi Skriva í sandin (Skrifað í sandinn) eftir Marjuna Syderbø Kjelnæs (Bókadeild Føroya Lærarafelags 2010).

Íslenska dómnefndin tilnefndi bókina Með heiminn í vasanum eftir Margréti Örnólfsdóttur (útg. Bjartur 2011).

Markmiðið með Barna- og unglingabókaverðlaunum Vestnorræna ráðsins er að styðja við bókmenntir á Vestur-Norðurlöndum og að hvetja rithöfunda til að nýta hæfileika sína til að skrifa barna- og unglingabókmenntir. Ráðið vill einnig vekja athygli á Vestur-Norðurlöndum sem einu svæði. Tilkynnt verður um hver hlýtur verðlaunin í ágúst 2012.

Tengiliðir

Þórður Þórarinsson framkvæmdastjóri Vesturnorræna ráðsins sími 00354 5630731 vestnordisk@althingi.is