Tilboð frá Norrænu blaðamannamiðstöðinni
Hvað er sameiginlegt með Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta, Nils Malmros kvikmyndaframleiðanda í Árósum, rótækum og friðsömum múslimum, hátíðarvikunni í Árósum, stjórnmálamönnum ESB sem láta sig loftslagsmál varða og ríkisstjórnar- og menningarborginni Berlin? Allir þessir aðilar eru hluti af „Árósar 2008“ tveggja mánaða blaðamannanámskeiði á vegum Norrænu blaðamannamiðstöðvarinnar.
Norræna blaðamannamiðstöðin hefur einnig sitthvað að bjóða norrænum blaðamönnum sem vinna við tölvustudda fréttamennsku. Haldin verður ráðstefna þar sem fjallað verður um síðustu sögur og aðferðir. Nils Mulvad og Tommy Kaas stýra ráðstefnunni, en þeir eru sjálfsagt þeir norrænu blaðamenn sem virkastir hafa verið á þessum vettvangi undanfarin ár.
