Sænska myndin Play er besta mynd Norðurlanda á þessu ári. Leikstjórinn Ruben Östlund og framleiðandinn Erik Hemmendorff (Plattform Produktion) standa að myndinni. Verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki þann 31. október.
Dómnefnd kvikmyndaverðlaunanna, en í henni eru kvikmyndasérfræðingar frá norrænu ríkjunum fimm, rökstyðja valið á bestu kvikmynd ársins á eftirfarandi hátt:
„Ruben Östlund leikstjóri sýnir enn einu sinni að hann er einn frumlegasti leikstjóri samtímans á Norðurlöndum. Með því að halda til streitu listrænni tilraun sinni – að kryfja og greina mannlega hegðun, gefur hann umhugsunarverða innsýn í félagsleg hlutverk og hlutverkaleik.
Stílfærð myndvinnslan, hvíldarlaus taktur frásagnarinnar og stórkostlegur leikur áhugaleikara gera Play að verki sem beinlínis veldur líkamlegum óþægindum og hvetur áhorfandann til umhugsunar um mikilvæg málefni í vestrænu þjóðfélagi“.
Play var heimsfrumsýnd á Directors Fortnight í Cannes árið 2011 og hlaut „Coup de coeur“ verðlaunin. Myndin hefur síðan hlotið fjölmörg alþjóðleg verðlaun, þ.m.t. fyrir bestu kvikmynd á „2 in 1“ -kvikmyndahátíðinni í Moskvu, fyrir besta leikstjóra í Tókýó, besta leikstjóra og kvikmyndatöku við afhendingu Guldbagge-verðlaunanna í Svíþjóð (2011) og Greta-verðlaun sænskra kvikmyndagagnrýnenda fyrir bestu sænsku mynd (2011).
PLAY var frumsýnd í sænskum kvikmyndahúsum í nóvember 2011 og hefur síðan verið sýnd m.a. í Danmörku, Noregi og Finnlandi.
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt árlega fyrir kvikmynd sem þykir uppfylla ströngustu kröfur um listræn gæði og byggja á norrænni menningu. Kvikmyndin á einnig að sýna listræna nýsköpun og stuðla að framþróun í kvikmyndalistinni með því að sameina hinar ýmsu hliðar hennar í sannfærandi og heilsteyptu verki.
Verðlaunakvikmyndin árið 2012 var valin úr hópi allra norrænna kvikmynda sem frumsýndar voru í kvikmyndahúsi frá 1. september 2011 til 31. ágúst 2012.
Í tilefni af tilkynningu um verðlaunahafa ársins segja Rubern Östlund og Erik Hemmendorff:
„Það er bæði frábært og ótrúlega mikil viðurkenning að hljóta kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs. Jafnvel þó að við höfum ferðast um fjögur af fimm norrænu ríkjunum með PLAY árið 2012 og upplifað þau frábæru viðbrögð og móttökur sem myndin hefur fengið, höfðum við aldrei þorað að vonast til þess að við fengjum verðlaunin í ár, því samkeppnin hefur verið grjóthörð.
Sem kvikmyndaframleiðendur verðum við alltaf að ögra, rannsaka og viðhalda sérlegum norrænum dráttum í okkar kvikmyndum, jafnvel þó að stundum geti verið erfitt að benda á sérstök norræn einkenni. Í bæði PLAY og fyrri mynd okkar „DE OFRIVILLIGA“ snertum við á takmarkalausum ótta okkar við að tapa andliti en honum er af mörgum utan Norðurlandanna lýst sem dæmigerðum norrænum. Kannski er þetta rétt?
Fyrir okkur einkennist góð kvikmynd af því að í þeim er mikilvægum spurningum beint til mannsins um manninn, í tengslum við það samfélag sem við búum í. Og einmitt það samfélag sem norrænar kvikmyndir spretta úr gefur kvikmyndunum sérstakan tón og karakter. Það er ef til vill það sem einkennir sérstaklega kvikmyndir sem verða til í norrænni kvikmyndagerð? „Við þurfum að vinna að því að ná þessum einkennum, sérstaklega vegna yfirburðarstöðu og þeirra áhrifa sem Hollywood-kvikmyndir hafa á þennan tjáningarmáta“.
Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn hefur umsjón með kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs. Verðlaun sem áður hafa verið veitt: Aki Kaurismäki fyrir MANDEN UDEN FORTID (2002), Per Fly (2005) fyrir DRABET, Josef Fares (2006) fyrir ZOZO, Peter Schønau Fog (2007) fyrir KUNSTEN AT GRÆDE I KOR, Roy Andersson fyrir DU LEVANDE (2008), Lars von Trier fyrir ANTICHRIST (2009), Thomas Vinterberg fyrir fyrir SUBMARINO (2010) og Pernilla August fyrir SVINALÄNGORNA (2011).
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs eru ein af föstum verðlaunum Norðurlandaráðs, aðrar eftirsóttar viðurkenningar eru bókmenntaverðlaunin, tónlistarverðlaunin og náttúru- og umhverfisverðlaunin. Kvikmynda-, tónlistar, og umhverfisverðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðþingi í Helsinki þann 31. október.
(Nánari upplýsingar um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs eru hér )
Dómnefnd kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2012 skipa:
Per Juul Carlsen, kvikmyndagagnrýnandi (Danmörku), Outi Heiskanen, upplýsingastjóri (Finnlandi), Sif Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri (Íslandi), Silje Riise Næss, dagskrárstjóri (Noregi) og Fredrik Sahlin, kvikmyndagagnrýnandi (Svíþjóð).
Upplýsingar um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs: www.nordiskrådsfilmpris.com eða www.nordiskfilmogtvfond.com.
Einnig er hægt að hlaða niður ljósmyndum og stiklum úr verðlaunakvikmyndinni ásamt mynd af verðlaunahöfum ársins. Á sömu krækju eru einnig vefsjónvarpsviðtöl við Ruben Östlund, Erik Hemmendorff og Fredrik Sahlin kvikmyndagagnrýnanda og fulltrúa í dómnefnd. Einnig kynningarefni, stiklur og lýsingar á öðrum tilnefndum myndum.
Host: http://post.nordiskfilmogtvfond.com:8000/Login
Username: press / Password: press2012ncfp
Nánari upplýsingar um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2012 veitir:
Freddy Neumann, Neumann PR & Kommunikation, sími. +45 2046 7846 eða neumann@mail.dk