Tillaga um sambandsríki skapar umræður
Rífum niður landamæri Norðurlandanna segir í leiðara sænska dagblaðsins Dagens Nyheter. Í kjölfar tillögu sagnfræðingsins Gunnars Wetterbergs um norrænt sambandsríki leggja fjölmörg sænsk dagblöð til að norrænt samstarf verði aukið og eflt.
Sænskir leiðarahöfundar hafa litla trú á nýju Kalmarsambandi, en vilja aukið og nánara norrænt samstarf.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
„Eitthvað hefur breyst í norrænu samstarfi. Forsætisráðherrarnir hittast oftar og líta á fundina sem mikilvæga, samkvæmt Dagens Nyheter. Stærsta dagblaðið á Norðurlöndum segir einnig frá jákvæðum viðbrögðum lesenda við tillögu sagnfræðingsins Gunnars Wetterbergs um nýtt norrænt sambandsríki til að efla rödd Norðurlanda á alþjóðavettvangi.
Fjölmiðlar á Norðurlöndum fjölluðu á þriðjudag og miðvikudag um grein Wetterbergs í DN, en forsætisráðherrarninr höfnuðu tillögunni. Maud Olofsson aðstoðarforsætisráðherra Svíþjóðar fagnar engu að síður umræðum um norrænt samstarf á okkar tímum, og leiðarahöfundar í mörgum sænskum dagblöðum fjölluðu um málið á miðvikudag. Leiðarahöfundur Västerbottens-Kuriren telur að forsendur fyrir sameinuðum Norðurlöndum hafi aldrei verið betri og að „næstum ekkert" mæli gegn norrænu sambandsríki.
„Samstarfið í Norðurlandaráði hefði átt að hafa í för með sér efnahagsbandalag þegar á áttunda áratug síðustu aldar. Stjórnsýsluhindranir hafa leitt til leiðinda og efnhagslegs taps fyrir fjölda íbúa á norðurslóðum, segir í blaðinu, sem vísar til þess að staðan í öryggismálum geri nú samstarf á sviði utanríkis- og öryggismála mögulegt eins og tillögur Stoltenberg skýrslunnar gera ráð fyrir.
Kalmarsambandið 2.0 pirrar
Norrköpings Tidningar telur að tilhugsunin um "Kalmarsambandið 2.0" pirri fólk og heldur því fram að það sé allt of einfalt að stimpla Wetterberg sem fortíðarsinna. Umræðurnar í ESB, SÞ og í alþjóðlega loftslagssamstarfinu sýna að til er „norræn sýn", skrifar blaðið.
Mörg dagblöð vilja aukið norrænt samstarf innan ESB og einnig um framkvæmd ESB löggjafar í ríkjunum. Norrtelje Tidning telur að Norðurlandaráð sé mikilvægt sem vettvangur þar sem norrænir stjórnmálamenn kynnast, en Helsingborg Dagblad telur að norræn samþætting ætti að eiga sér stað með auknu samstarfi á sviði menntunar og menningar.
„Það er ekki þörf á nýju sambandsríki, heldur líflegra samstarfi“, telur leiðarahöfundur blaðsins.
Skráning
Aðeins skráðir þátttakendur geta setið fundinn. Sendið ósk um skráningu til Henrik Killianders á netfangið heki@norden.org
