Almenningur á Norðurlöndum hefur sent inn tillögur að því hverjir skuli hljóta umhverfisverðlaunin í ár. 22 tillögur bárust um allt frá rithöfundum til gasorkuvera. Rúmlega helmingur tillagna bárust frá Svíþjóð og Finnlandi.
Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2013 verða veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur þróað vöru, uppfinningu eða með öðrum hætti aukið skilvirka nýtingu auðlinda og þar með stuðlað að minni neikvæðum áhrifum mannsins á náttúruna.
Að neðan er listi yfir allar tillögur sem bárust:
Katvig ApS, framleiðandi barnafatnaðar
Fyrirtækið Katvig ApS er tilnefnt fyrir framleiðslu á umhverfisvænum barnafatnaði og fyrir sjálfbærni.
Nánar um Katvig ApS: http://www.katvig.dk/pocket/
Selina Juul, samtökin Stop Spild Af Mad
Selina Juul er tilnefnd sem stofnandi neytendasamtakanna Stop Spild Af Mad - stærstu samstaka Danmerkur með það að markmiði að koma í veg fyrir að matvara fari til spillis.
Nánar um Selina Juul: http://www.stopspildafmad.dk/
Bente Roestad, rithöfundur og sjónvarpsþáttagerðarkona
Bente Roestad er tilnefnd fyrir umhverfis- og umhverfisvæn úræði sin fyrir börn, fyrst og fremst fyrir «Blekkulf», en hún hefur einnig þróað fjölda annarra kennsluáætlana fyrir skóla.
Nánar um Bente Roestad: http://bellona.no/nyheter/nyheter_2012/pangeapris2012
Nina Jensen, framkvæmdastjóri World Wildlife Fund
Nina Jensen er tilnefnd fyrir starf sitt í loftslagsmálum, sérstaklega fyrir ákveðnar skoðanir gegn jarðefnaiðnaði
Nánar um Nina Jensen: http://wwf.no/om_wwf/hvem_er_vi/generalsekretar/
Carbon Recycling International, nýsköpunarfyrirtæki
Carbon Recycling International er tilnefnt fyrir að fanga CO2 frá iðnaðarútblæstri og breyta því í hreint vistvænt metanól (RM).
Nánar um Carbon Recycling: http://www.carbonrecycling.is/
Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna,
Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna er tilnefndur fyrir hve mikilvægur hann hefur verið fyrir þróun, innleiðingu og vinnslu á jarðvarma.
Nánar um Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna: http://www.unugtp.is/
Norðursigling, hvalaferðir
Norðursigling hvalaferðir eru tilnefndar fyrir umhverfisvernd og tillitsama umgengni um vistkerfi hafsins.
Nánar um Norðursiglingu: http://www.northsailing.is/home/
Herttoniemen ruokaosuuskunta, Landbúnaður í héraði
Herttoniemen ruokaosuuskunta eru tilnefnd fyrir að verða fyrst til að stuðla að styrkja landbúnað í héraði í Finnlandi.
Nánar um Herttoniemen ruokaosuuskunta: http://ruokaosuuskunta.fi/english/
Jupiter-Säätiö, verslun með notaða vöru
Verslunin Jupiter-Säätiö er tilnefnd fyrir tíu ára rekstur skapandi verslunar með notaðar vörur.
Nánar um Jupiter-Säätiö: http://www.jupiter.fi/
Aino Heikkinen-Mustonen, byggingarverkfræðingur
Aino Heikkinen-Mustonen er tilnefnd fyrir þróun „Maan alta maan alle" (Frá jörð í jörð) - aðferð þar sem nýtt eru umhverfisvæn byggingarefni. (engin vefsíða enn sem komið er)
UMP, skógariðnaður
Fyrirtækið UMP er tilnefnt fyrir að samþætta hefðbundna skógrækt- og iðnað með nýrri tækni sem eykur endurvinnslu náttúruefna.
UPM Kymmene Oyj - UPM ForMi and Puustelli Oy, vöruframleiðandi
Fyrirtækið UPM Kymmene Oyj - UPM ForMi and Puustelli Oy er tilnefnt fyrir nýskapandi líffræðilega samsetningu sem felst í því að setja saman sellulosa-trefjar og plast.
UPM Biofuels, lífrænt eldsneyti
Fyrirtækið UMP Biofuels er tilnefnt fyrir nýskapandi aðferðir við vinnslu lífræns eldsneytis.
Nánar um allar tillögur vegna UMP: http://www.upm.com/EN/PRODUCTS/Biofuels/Pages/default.aspx
Janne Savelainen, forstjóri Lahti Energia gasorkuversins
Janne Savelainen er tilnefndur fyrir Lahti Energias Kymijärvi II – sem er það fyrsta í heiminum sem nýtir einungis úrgang við vinnslu hita og raforku.
Nánar um Janne Savelainen og Lahti Energia: http://www.lahtienergia.fi/
Verkefni HINKU Kolneutral sveitarfélagsins, umhverfisverkefni
HINKU-verkefnið er tilnefnt fyrir vinnu við að minnka umhverfisskaðlega losun með það að markmiði að skapa sveitarfélag sem er með koldíoxíð-jafnvægi.
Nánar um HINKU: http://www.hinku-foorumi.fi/
Centrum för miljö- och utvecklingsstudier (CEMUS), menntun
Centrum för miljö- och utvecklingsstudier er tilnefnt fyrir starf sitt á sviði menntunar þar sem áhersla er lögð á auðlindanýtingu og sjálfbæra þróun.
Nánar um Centrum för miljö- och utvecklingsstudier: http://www.cemus.uu.se/omcemus.html
Hållbara Hav og Hållbara Hav Østersjøen, námstefna og sýning
Hållbara Hav og Hållbara Hav Østersjøen eru tilnefnd fyrir frumkvæði að námstefnu og sýningu þar sem sjónum er beint að umhverfisvænni umferð á sjó og þá sérstaklega á Eystrasalti.
Nánar um Hållbara Hav og Hållbara Hav Østersjøen: http://www.hallbarahav.nu/
Lantbrukarnas Riksförbund (LRF), hagsmunasamtök
Samtökin Lantbrukarnas Riksförbund eru tilnefnd fyrir starf sitt á sviði auðlindanýtingar og sjálfbærrar þróunar í sænskum landbúnaði.
Nánar um Lantbrukarnas Riksförbund: http://www.lrf.se/
Solvatten AB, vatnshreinsistöð
Vatnshreinsistöðin Solvatten AB er tilnefnd fyrir umhverfisvænt vatnshreinsikerfi sem þróað hefur verið fyrir vanþróuð lönd, þar sem einungis er nýtt sólarorka.
Nánar um Solvatten AB: http://www.solvatten.se/
Thore Andersen for TA Teknik & Fritid, þróandi sólfangara
Thore Andersen er tilnefndur fyrir þróun á orkusparandi sólfangara fyrir fyrirtækið TA Teknik & Fritid. Sólfangarar eru nýttir við framleiðslu sólarorku.
Nánar um Thore Andersen fyrir TA Teknik & Fritid: http://www.tateknik.se/
Ålands Biodlarförening,samtök býflugnabænda
Samtökin Ålands Biodlarförening eru tilnefnd fyrir aðgerðir til að útrýma sníkjudýrinu Varroa frá Álandseyjum.
Nánar um Ålands Biodlarförening: http://biodlarna.ax/
Fulltrúar í dómnefnd velja þá sem tilnefndir verða í lokakeppnina.
Nánar um tilnefningarferlið: Um náttúru- og umhverfisverðlaunin
Tilkynnt verður hverjir eru tilnefndir til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2013 þann 14. júní. Verðlaunin verða afhent 30. október á Norðurlandaráðsþingi í Ósló.