Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs birtar 1. desember
Miðvikudaginn 1. desember kl. 12.00 að dönskum tíma verður gert opinbert hverjir hafa verið tilnefndir til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011.
Tilkynnt verður um þá sem tilnefndir eru til þessara virtu bókmenntaverðlauna á vefsíðunni www. norden.org og einnig verður send út fréttatilkynning.
Dómnefnd velur verðlaunahafa á fundi sem haldinn verður í Ósló 12. apríl 2011 og sama dag verður tilkynnt um niðurstöðuna. Verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþingi í Kaupmannahöfn í byrjun nóvember á næsta ári.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt fyrir fagurbókmenntaverk sem skrifað er á norrænu tungumáli. Verkið getur verið skáldsaga, ljóðasafn, smásögur, ritgerðasafn eða annað fagurfræðilegt ritverk. Verkið verður að uppfylla fagurfræðilegar og listrænar kröfur.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt árlega. Verðlaununum fylgja 350.000 danskar krónur.
Ekki er hægt að sækja um bókmenntaverðlaunin. Norræn dómnefnd velur verðlaunahafa.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fagna hálfrar aldar afmæli.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs voru sett á laggirnar árið 1961 og veitt í fyrst sinn 1962. Hálfrar aldar afmælis verðlaunanna verður minnst með fjölda viðburða bæði 2011 og 2012. Nánari upplýsingar á vefsíðunni norden.org

Tengiliðir
Jesper F. Schou-Knudsen
Sími
+45 33 96 03 55
Tölvupóstur
jsk@norden.org