Tilnefningar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2018

31.05.18 | Fréttir
Temabild Musikpriset 2018
Dómnefndin hefur tilnefnt 13 verk til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2018. Hin tilnefndu verk verða tilkynnt á tónlistar- og leiklistarhátíðinni Festspillene i Bergen þann 31. maí.

Danmörk

Finnland

Færeyjar

Grænland

Ísland

Noregur

Svíþjóð

Áland

Verðlaunahafi verður tilkynntur 30. október

Nafn handhafa tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs verður tilkynnt í Norsku óperunni þann 30. október 2018 þegar Norðurlandaráð þingar í Ósló. Tekur hann á móti verðlaununum sem nema 350 þúsund dönskum krónum.

Um tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs

Tónlistarverðlaunum Norðurlandaráðs er ætlað að vekja athygli á tónlistarsköpun og tónlistarflutningi sem telst hafa mikið listrænt gildi. Verðlaunin eru til skiptis veitt verkum eftir núlifandi tónskáld og til stærri eða minni tónlistarhópa.

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir á hverju ári fimm verðlaun en þau eru á sviði bókmennta, kvikmynda, tónlistar, umhverfismála og barna- og unglingabókmennta. Verðlaunum Norðurlandaráðs er ætlað að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi á sviði umhverfismála um leið og veita framúrskarandi árangri á sviði lista og umhverfismála viðurkenningu. Verðlaunin eiga að vekja athygli á norrænu samstarfi.