Document Actions

Tíu leiðir til að vinna gegn andfemínisma og hægriöfga öflum

Gefnar hafa verið út tíu tillögur um hvernig vinna má gegn ofbeldisfullu og andfemínistísku áreiti og hægri öfgaöflum. Í ritinu er reynsla 25 sérfræðinga tekin saman og í fyrsta sinn fjallað um vandann út frá norrænu sjónarmiði.

25/03 2013

Í skýrslunni er birt samantekt af niðurstöðum sérfræðinganámstefnu sem haldin var af Norrænu ráðherranefndinni í nóvember, og er þar bent á hvernig karl- og kvenímyndir birtast í öfgafullri hugmyndafræði. Fjallað er um samband andfemínisma og andstöðu gegn jafnrétti og samþættu samfélagi, svo sem útlendingahaturs, íslamsfælni og hægri öfgum.

„Aðgerðir sem við leggjum til eiga að koma í veg fyrir andfeminískt ofbeldi, ofbeldishótanir og áreiti. Andfemínimsmi er ekki einangrað málefni, heldur hefur sínar birtingarmyndir einnig í útlendingahatri, íslamsfælni og innan róttækrar íslamtrúar", segir Are Saastad, framkvæmdastjóri Reform, sem er jafnréttisstofnun fyrir karla í Noregi, sem tók skýrsluna saman.

„Skýrslan verður mikilvægur þekkingargrunnur fyrir stofnanir, samtök, lögreglu og stjórnmálamenn sem vinna gegn hægri öfgasinnum og kynþáttamismunun. Það er í lagi að hafa sína skoðanir á femínisma og jafnrétti, en í lýðræðislegu þjóðfélagi verður fólk að tjá skoðanir sínar á ásættanlegan máta", segir Saastad.

Meðal þátttakenda á sérfræðinganámstefnunni voru Mattias Gardell, sem vitnaði í réttarhöldunum um hryðjuverkin í Noregi 2011, danski hryðjuverðarannsakandinn Anja Dalgaard-Nielsen, Shoaib Sultan, sérfræðingur um öfgaaðgerðir hjá Stofnun gegn útlendingahatri í Noregi, sænski blaðamaðurinn og femínistíski rithöfundurinn Maria Sveland og Cora Alexa Døving frá Helfararstofnuninni í Noregi.

Skýrslan í heild (á norsku)

Tengiliðir

Petra Sjöström
Sími +45 21 71 71 23
Tölvupóstur pesj@norden.org

Heidi Orava
Sími +45 21 71 71 48
Tölvupóstur heor@norden.org