Töfrandi tónar fylltu salinn þegar Víkingur Ólafsson lék fyrir fullum tónleikasal í Kennedy Center for Performing Arts í höfuðborg Bandaríkjanna. Gagnrýnir Washingtonbúar sem standa upp og yfirgefa staðinn líki þeim ekki það sem flutt er, sátu ýmist gagnteknir eða þeir stóðu upp og hrópuðu bravó!
Mynd: Margot Schulman
Víkingur heimsfrumflutti verk eftir Hauk Tómasson (f. 1960) White Open Space, sem samið var sérstaklega fyrir hátíðina NORDIC COOL 2013. Og það var einmitt við flutning þessara samhverfu tóna, rytma og hreyfinga, að allt varð hljótt. Eins og snævidrifin víðáttan milli tignarlegra eldfjalla á Íslandi.
Víkingur kallaði tónleika sína The North is a State of Mind, og hugarástand var það sem hann vildi miðla. Ekki þræða norræna tónsmiði upp á band eins og perlur. Þannig fengum við með aðstoð Brahms, Sibelius, Debussy, Grieg og Wagner að fylgja honum inn í myrka skóga, að fossandi ám, heimþrá og gamalli norrænni þrá.
Hluti bandarísku áheyrandanna höfðu örugglega heyrt um Víking áður. Tónlistargagnrýnendur stóru alþjóðlegu blaðanna hafa þegar útnefnt hann sem „Iceland's rising star of a pianist" hann er tæplega þrítugur og hefur spilað með fjölda þekktra tónlistarmanna. Íslenska sjónvarpið gerir tíu þætti með honum í ár, þannig að það sem við upplifðum í Kennedy Center er einungis áfangastaður á framabrautinni.
Á sinn sérstaka hátt og með líkamstjáningu sinni finna áheyrendur hve stoltur hann er af því að fá tækifæri til að kynna íslenska klassíska tónlist. Lítið tónverk eftir Snorra Sigifús Birgisson ( f. 1956), hefur ekki áður verið leikið utan Íslands, og þjóðlagatónninn fær fólk til að hlæja hátt. Ef til vill þekkja sumir eldri tónskáldin Pál Ísólfsson og Sigvalda Kaldalóns, sem var í raun læknir á Vestfjörðum en samdi meðal annars Ave Maria, sem er í miklu uppáhaldi hjá Víkingi. Bandarískir áheyrendur kunnu einnig að meta verkið.
Bodil Tingsby
Sími
+45 33 96 03 57
Tölvupóstur
bot@norden.org