Þróun tölvuleika á Norðurlöndum er enn ofarlega á óskalista norrænna þingmanna þegar rætt er um framtíð norræns samstarfs. Norræna ráðherranefndin verður að leggja til aukið fjármagn til norrænna tölvuleikja segja þingmenn.
Ef stjórnmálamenn frá öllum Norðurlöndunum fá að ráða, geta bæði framleiðendur tölvuleikja og börn og unglingar vænst aukinnar pólitískrar athygli. Menningar- og menntanefnd Norðurlandaráðs ræðir á fundi sínum í Reykjavík í dag nýja stefnu sína fyrir eitt af árangursríkustu verkefnum norræns menningarsamstarfs.
Mogens Jensen formaður menningar- og menntanefndar Norðurlandaráðs lýsir eftir viðurkenningu á því að nútíma menningar- og iðnaðarumhverfi sé að breytast og að börn og unglingar ásamt atvinnulífinu gegni þar mikilvægu hlutverki:
„Áherslan á tölvuleikjageirann hefur fyrir löngu sannað sig. Til dæmis hefur tölvuleikjageirinn nú þegar farið fram úr kvikmyndaiðnaðinum í veltu. Allt bendir til þess að tölvuleikir séu mótunarmiðill framtíðarinnar fyrir börn og unglinga og að fullorðnir verði einnig mikilvægur markhópur. Tölvuleikjaiðnaðurinn hefur fest sig í sessi, það verður Norræna ráðherranefndin að viðurkenna og veita auknu fjármagni til geirans“, segir Mogens Jensen.
„Það er þörf á framsýnum átaksverkefnum í norrænu samstarfi og því er tilvalið að leggja áherslu á samspil barna og unglinga, miðla og atvinnulífs. Við hvetjum því til þess að tölvuleikjaáætlunin verði aukin svo hún nái einnig til leikja fyrir fullorðna og styðji norræna þróun á eSport“, segir Mogens Jensen.
Formaðurinn sem er fulltrúi jafnaðarmanna bendir á að Norræna tölvuleikjaáætlunin sé eitt af þeim verkefnum, sem mestan árangur hefur borðið í hinu nýja norræna samstarfi.
„Árið 2008 bárust 138 umsóknir, nýtt met, sem sýnir að norræni tölvuleikjageirinn er í stöðugum vexti, en einnig að mikil þörf er á fjármagni fyrir fjölmörg verkefni„, útskýrir Mogens Jensen.