Tólf kórar keppa um Tónlistarverðlaun Norðurlandar

Ákvörðun um tilnefningar til tónlistaverðlauna Norðurlandaráðs hefur verið tekin. Tólf kórar frá öllum Norðurlöndunum keppa um norrænu tónlistarverðlaunin að þessu sinni, en verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþinginu í Ósló í lok október. Verðlaunin nema 350 þúsundum danskra króna, eða um 4 milljónum íslenskra króna. Í fyrsta sinn í sögu tónlistarverðlaunanna er þema ársins kórsöngur.

28/03 2007

Samtals eru 12 kórar tilnefndir, hvert Norðurlandanna 5 tilnefnir 2 kóra. Sjálfstjórnarsvæðin Færeyjar og Grænland tilnefna einn kór hvort, en engin tilnefning kom frá Álandseyjum.

Tilnefndir kórar eru:

Danmörk:
Ars Nova
DR Radiokammerkoret / DR Vokalensemblet – Útvarpskór danska ríkisútvarpsins

Finnland:
Philomela
EMO Ensemble

Færeyjar:
Tarira

Grænland:
Grønlands Nationalkor – Þjóðkór Grænlands

Ísland:
Schola Cantorum
Hamrahlíðarkórinn

Noregur:
Det Norske Solistkor – Norski einsöngvarakórinn
Vokal Nord

Svíþjóð:
Radiokören - Útvarpskórinn
Eric Ericsons Kammarkör