Document Actions

Traust borið til rannsóknasamstarfs Norðurlanda.

Norrænt rannsóknasamstarf er vel skipulagt og mikið traust ríkir í samskiptum þjóða og stofnana. Samstarfið er traustur grunnur fyrir m.a. rannsóknaáætlanir sem eru sameiginlega fjármagnaðar, segir vinnuhópur sem Norræna ráðherranefndin skipaði til að meta norrænt rannsóknasamstarf.

15/12 2011

Styrkleikar samstarfsins felast m.a. í öflugri rannsóknahefð, miklum fjárfestingum og umfangsmiklu samstarfi á öllum stigum.

Neikvæðu atriðin eru t.d. að kerfin eru flókin og raunverulega samþættingu skortir. Fjármagnið er þó of lítið og hægt er að auka hreyfanleika vísindamanna, segir hópurinn í skýrslu sinni.

– Mikilvægast er að auka tækifæri til samkeppni þannig að allir fræðimenn geti sótt um rannsóknastyrki alls staðar á Norðurlöndum. Þeir sem fá styrki ættu einnig að geta tekið þá með sér hvar sem þeir starfa á Norðurlöndum, segir Rolf Annerberg, framkvæmdastjóri FORMAS rannsóknaráðsins, og fulltrúi í hópnum.

Vill norræna stefnu um Horizon 2020 áætlun ESB

Starfshópurinn lýsir einnig eftir stefnubreytingu í norrænu rannsóknarsamstarfinu svo það aðgreini sig ekki frá því evrópska. Þess í stað ætti að líta á það sem stefnumótandi tækifæri og samstarfsvettvang sem tengist Evrópusamstarfinu og öðru alþjóðlegu samstarfi, að mati hópsins, sem vill norræna stefnu innan áætlunar ESB um rannsóknir og nýsköpun, Horizon 2020.

– Hægt er að styðja samstarfið á ýmsum stigum. Á verkefnastigi er hægt að styrkja rannsóknahópa sem vilja starfa saman á Evrópuvettvangi og nýta reynslu sérfræðinga til að stuðla að samstarfi. Þá eru einnig fjölmörg tengslanet sem má styrkja, segir Rolf Annerberg.

Starfshópurinn gengur í skýslu sinni út frá þeim breytingum sem átt hafa sér stað á alþjóðavettvangi, í Evrópu og í norrænu samstarfi eftir að norræna rannsókna- og nýsköpunarsamstarfið NORIA, og stofnanirnar NordForsk og Norræna nýsköpunarmiðstöðin komu til sögunnar.

Í starfshópnum eru Rolf Annerberg, Kristin Clemet, framkvæmdastjóri rannsóknastofnunarinnar Civita ásamt Maiu Makarov formanni Evrópsku rannsóknastofnunarinnar ESF.

Tengiliðir

Fredrik Melander
Sími +45 33 96 02 23
Tölvupóstur frm@norden.org

Tengt efni
  • Vilja till forskning? (Útgefið rit)

    Rapport från Högnivågruppen för översyn av det nordiska forskningssamarbetet

  • Norræna ráðherranefndin um menntun og rannsóknir (MR-U) (Samtök)

    Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um rannsóknir og menntun er stjórnað af norrænu ráðherrunum sem fara með málefni menntamála og rannsókna, saman mynda þeir MR-U. Ráðherranefndin vinnur að því að Norðurlöndin verði í fararbroddi hvað varðar þekkingu og samkeppnishæfni.

  • NordForsk (Samtök)

    NordForsk er norræn stofnun sem hefur umsjón með samstarfi um rannsóknir og rannsóknamenntun á Norðurlöndunum. Stofnunin leggur áherslu á rannsóknasvið sem Norðurlöndin standa sig best í á alþjóðavettvangi.

  • Nordisk Innovation (Samtök)

    Nordisk Innovation setur á laggirnar og fjármagnar verkefni sem efla nýsköpun, stofnunin vinnur fyrst og fremst með litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Norðurlöndunum. Markmiðið er að auðvelda þróun og rekstur fyrirtækja þvert á norræn landamæri.