Document Actions

Umdeildar kosningar í Rússlandi

Alþjóðleg eftirlitsnefnd sem fylgdist með kosningum til Dúmunnar í Moskvu á sunnudag hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fyrirkomulag þeirra er gagnrýnt.

06/12 2011

– Í kosningunum kom í ljós að rússneska þjóðin getur mótað framtíð landsins með skoðunum sínum þrátt fyrir ýmsar hindranir. En þörf er á breytingum svo vilji fólksins nái fram að ganga, sagði Petros Efthymiou, formaður kosningaeftirlits Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Rússlandi. ÖSE og þingmannaráðstefnu Evrópuráðsins sendu frá sér yfirlýsingu um kosningarnar og tóku fulltrúar í sendinefnd Norðurlandaráðs undir efni hennar.

Þrír stjórnmálamenn: Michael Tetzschner frá Noregi, Jeppe Mikkelsen frá Danmörku og Helén Pettersson frá Svíþjóð voru við kosningaeftirlit á vegum Norðurlandaráðs í Moskvu. Aðrir norrænir þingmenn voru í stærri hópum eftilitsmanna sem sendir voru af ÖSE og þingmannaráðstefnum Evrópuráðsins. Alls fylgdust 325 erlendir eftirlitsmenn með rúmlega 1.300 kjörstöðum og talningu á 115 stöðum.

Þetta er þó einungis brot af kjörstöðum í þessu afar stóra landi, en eftirlitið gaf þó til kynna að ekki var allt eftir bókinni. Eftirlitsmenn Norðurlandaráðs náðu að skoða rúmlega 20 kjörstaði. Almennt gengu kosningarnar vel fyrir sig, en gagnrýnt er hvernig staðið var að talningu atkvæða. Einum hópi var ekki hleypt inn fyrr en búið var að tæma kjörkassana og talning hafin. Jeppe Mikkelsen fylgdist með talningu allra atkvæða á litlum kjörstað. Þar höfðu einungis fimmtungur íbúa greitt atkvæði. Aftur á móti komu rútur með um 1.000 opinbera starfsmenn sem var ekið á kosningastað af yfirvöldum. Hann sagði í viðtali Jótlandspóstinn:

– Það var enginn stjórn á fjölda atkvæða. Á einum tímapunkti gáfu þeir upp tölu sem sýndi að fjöldi greiddra atkvæða var meiri en fjöldi móttekinna atkvæðaseðla. Þá spurði ég hvernig það gæti verið, og það skýrðu þeir á þann veg að þeir hefðu fengið aukaatkvæðaseðla, og þannig breyttu þeir sífellt tölunum. Kosningaþátttaka var óvenjumikil, nær 90% og það kom ekki á óvart að stjórnarflokkurinn Sameinað Rússland fékk um 80% atkvæða.

450 nýir fulltrúar í Dúmunni koma ennþá frá fjórum flokkum. Stjórnarflokkurinn Sameinað Rússland missti talsvert fylgi og fékk um 49,5 prósent atkvæða. Kommúnistar bættu fylgi sitt og fengu 19,1 prósent atkvæða. Jafnaðarmannaflokkurinn Réttlátt Rússland bætti við sig og fékk 13,2 prósent atkvæða. Þjóðernisflokkurinn sem nefnist Frjálslyndir demókratar fékk 11,6 prósent atkvæða. Þrír flokkar náðu ekki lágmarks atkvæðamagni sem er 7 prósent. Sá þeirra sem hlaut flest atkvæði var frjálslyndi flokkurinn Jabloko sem fékk 3,3 prósent atkvæða.

 

Yfirlýsing frá ÖSE og þingmannaráðstefnum Evrópuráðsins

Grein í Jótlandspóstinum

Tengiliðir

Torkil Sørensen
Sími +45 33 96 04 46
Tölvupóstur ts@norden.org

Tengt efni