Document Actions

Umhverfismerkið Svanurinn 20 er tuttugu ára í dag

Norræna umhverfismerkið Svanurinn er 20 ára í dag. Þann 6. nóvember 1989 samþykktu Norræna ráðherranefndin að setja á laggirnar opinbert norrænt umhverfismerki. Svanurinn hefur á þessum tveimur áratugum skapað sér sess sem þekktasta umhverfismerkið á Norðurlöndum og er nú eitt af flaggskipunum í norrænu samstarfi.

06/11 2009
Svanmärkning
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Markmiðið með Svaninum er að skapa sjálfbært samfélag með sjálfbærri neyslu. Með því að versla grænt og velja Svaninn geta neytendur og innkaupastjórar tekið þátt á að bæta umhverfið. Nú heyra rúmlega 60 vöruflokkar undir umhverfismerkið Svaninn. Auk hefðbundinna vöruflokka, eins og til að mynda þvottaefni og ýmis konar pappírsvörur, er Svanamerkið einnig nýtt til að merkja umhverfisvænar tölvur, hótel, veitingastaði og hreingerningafyrirtæki.

Svanurinn er vel þekkur meðal Norðurlandabúa. Í könnun sem gerð var í Svíþjóð árið 2007 kom í ljós að 97 prósent Svía þekkti merkið. Umhverfismerki Evrópusambandsins er ESB-blómið. Það er þó töluvert yngra og nær einvörðungu til 25 vöruflokka.

Ákvarðanir um kröfur til vöru sem merkt er Svaninum eru teknar af norrænu ríkjunum í sameiningu. Fyrirtæki sem vilja umhverfismerkja vöru sína, verða að sækja um umhverfismerkið Svaninn hjá viðkomandi stjórnvaldi í sínu landi.

Umhverfismerkið Svanurinn er hannað af finnska listamanninum Kyösti Varis, sem einnig hannaði merki Norrænu ráðherranefndarinnar.

Nánar um Svaninn

Tengiliðir

Mia Rahunen
Sími +45 33 96 02 61
Tölvupóstur mira@norden.org