Document Actions

Umhverfismerkið Svanurinn er trygging fyrir fleirum vistvænum gistihúsum

Formaður umhverfis- og auðlindanefndar Norðurlandaráðs vísar á bug gagnrýni Vistfræðiráðsins í Danmörku, sem birtist í dagblaðinu Politiken nýlega. Þar var því haldið fram að umhverfismerki, þar á meðal Svanurinn, væru nýtt til að umhverfisvotta gistihús þrátt fyrir að þau bruðli með orku.

04/01 2010
Ann-Kristine Johansson

"Neytendur eiga að vera öruggir um að varan sé vistvæn þegar þeir kaupa vöru merkta Svansmerkinu, þar með talið hótelgistingu." segir Ann-Kristin Johansson.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Kröfur sem gerðar eru til Svansmerkisins eru endurskoðaðar reglulega og á nýju ári verða þær endurskoðaðar með tilliti til þessarar gagnrýni.

"Það eru vonbrigði að Vistfræðiráðið skuli taka Svansmerkið með í almenna gagnrýni á hvernig gistihús öðlast umhverfisvottun. Settar hafa verið margar og strangar kröfur um notkun Svansmerkisins, meðal annars um orkunotkun.

"Það eru vonbrigði að Vistfræðiráðið skuli taka Svansmerkið með í almenna gagnrýni á umhverfisvottun hótela. Settar hafa verið margar og strangar kröfur um notkun Svansmerkisins, meðal annars um orkunotkun. Árið 2010 verða kröfur sem settar eru um útgáfu Svansmerkisins hjá hótelum endurskoðaðar,og ég hvet Vistfræðiráðið til að koma með tillögur að breytingum með tilliti til þess", segir Ann-Kristin Johansson (S), formaður umhverfis- og auðlindanefndar Norðurlandaráðs.

Í greininni í Politiken kemur fram að strangari kröfur eru gerðar um orkunotkun við veitingu Svansmerkisins en hjá öðrum umhverfismerkingum. Søren Mørch Andersen hjá Umhverfisstofnuninni í Danmörku bendir í greininni á að gistihúsarekstur sé margþættur. Umhverfis- og auðlindanefnd furðar sig því á að Vistfræðiráðið skuli setja Svansmerkið í sama flokk og önnur merki, þar sem svo virðist sem strangari kröfur séu gerðar um umhverfisvottun hótela með því.

"Neytendur eiga að vera öruggir þegar þeir kaupa vöru merkta Svansmerkinu um að varan sé vistvæn, þar með talið hótelgisting. Þess vegna vilja jafnaðarmenn í Norðurlandaráði taka virkan þátt í endurskoðun krafna sem gerðar eru til gistihúsa sem öðlast umhverfisvottun með Svansmerkinu", segir Ann-Kristin Johansson.

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org

Nánari upplýsingar gefur Kristina Aaltonen, ritari flokkahóps Jafnaðarmanna í Norðurlandaráði. Farsími: +45 61 62 34 92
Netfang: skraa@ft.dk