Umræða um norræna sjónvarpsrás endurvakin
Norræn sjónvarpsrás gæti verið í sjónmáli.
„Með sameiginlegri sjónvarpsrás hefðu Norðurlandabúar raunhæfan valkost við allt það bandaríska efni sem nú er boðið upp á í sjónvarpi og er mest áberandi á ríkissjónvarpsstöðvum norrænu ríkjanna. Jafnframt verður rásin nýr vettvangur til að auka áhuga á
- Ljósmyndari
- Johannes Janssson/norden.org
„Með sameiginlegri norrænni sjónvarpsrás hefðu Norðurlandabúar raunhæfan valkost við allt það bandaríska dagskrárefni sem nú er boðið upp á í sjónvarpi og er mest áberandi á ríkissjónvarpsstöðvum norrænu ríkjanna“, segir Olemic Thommessen.
Norðurlandabúar geta ef til vill farið að hlakka til að fá norræna sjónvarpsrás. Menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs beinir nú sjónum að sameiginlegri menningarrás fyrir öll norrænu ríkin fimm. Fyrirmyndin er sótt í fransk-þýsku sjónvarpsstöðina Arte, sem áhorfendur í Þýskalandi og Frakklandi hafa notið góðs af frá árinu 1992.
Þingmenn allra norrænu ríkjanna bregðast nú við aukinni eftirspurn frá sjónvarpsáhorfendum um menningartengt sjónvarpsefni hjá norrænu sjónvarpsstöðvunum. Menningarmálanefnd Norðurlandaráðs hefur því endurvakið umræðuna um norræna sjónvarpsrás. Útsendingar eiga að höfða til allra norrænna sjónvarpsáhorfenda og einkanlega senda út norrænt og evrópskt menningarefni. Jafnframt er nýju sjónvarpsrásinni ætlað að efla norræna menningu og tungumálaskilning.
„Með sameiginlegri sjónvarpsrás hefðu Norðurlandabúar raunhæfan valkost við allt það bandaríska efni sem nú er boðið upp á í sjónvarpi og er mest áberandi á ríkissjónvarpsstöðvum norrænu ríkjanna. Jafnframt verður rásin nýr vettvangur til að auka áhuga á norrænni list og menningu, ekki einungis á Norðurlöndum heldur einnig utan þeirra“, segir Olemic Thommessen, fulltrúi í menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs.
Nefndin leggur áherslu á að hugmyndin um sameiginlega norræna sjónvarpsrás eigi að vera tilboð til áhorfenda og viðbót við innlenda dagskrárgerð. Norræna sjónvarpsrásin á eingöngu að vera útsendingarás, og ekki framleiðandi efnis. Samstarf um framleiðslu sjónvarpsefnis og sameiginleg framleiðsla á að vera á vegum norrænu sjónvarpsstöðvanna.
Til að byrja með leggur menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs til að umræðan um sameiginlega norræna rás verði endurvakin:
„Hugmyndin að sameiginlegri norrænni sjónvarpsrás hefur verið rædd fyrr. Henni hefur alltaf verið hafnað á þeim forsendum að sjónvarpsáhorfendur á Norðurlöndum og forsendur séu ólíkar. En með tækniframförum hafa forsendur breyst. Nú er hægt með nýrri tækni að aðlaga útsendingar að hverju landi fyrir sig og hverjum áhorfanda fyrir sig“, segir Olemic Thommessen.
Þann 14. apríl stendur Menningar- og menntamálanefndin fyrir námstefnu samhliða fundum Norðurlandaráðs í Ósló. Þar verður fjallað um samstarf norrænna almannaþjónustumiðla í framtíðinni. Þar munu þingmenn skoða hvaða möguleikar eru á því að setja á laggir sameiginlega norræna sjónvarpsrás um menningu, með sambærilegu fyrirkomulagi og fransk-þýska menningarsjónvarpsstöðin Arte.
Námstefnan verður haldin 14. apríl í norska Stórþinginu kl. 13:00 – 16:00.
Staður Stórþingið, inngagur frá Prinsensgate 26, Høringssal N-303.
Tengiliðir
Anne-Mette Persdotter
Sími
+45 33 96 04 50
Tölvupóstur
amp@norden.org
Silje Bergum Kinsten
Sími
+45 33 96 02 51
Tölvupóstur
siki@norden.org
