Umræðugrundvöllur á að fjarlægja kerfishindranir
Ole Norrback fyrrverandi sendiherra og samstarfsráðherra Finnlands hefur verið ráðinn til að stjórna starfi norræns umræðugrundvallar um stjórnkerfishindranir. “Ég myndi helst að mestu hindranirnar hyrfu strax. Það eru margar hindranir sem snerta marga Norðurlandabúa og eru alls óþarfar”, segir Ole Norrback við fréttabréfið Øresundsbrevet.
Það er engin nýlunda fyrir Ole Norrback að vinna með stjórnkerfishindranir. Fyrir sex árum var hann í starfshópi sem skrifaði skýrslu um kerfishindranir. Þegar á þeim tíma taldi hann að til væru fjölmörg dæmi um ótrúlega kerfishindranir og hann er ekki alveg viss um að þær hafi ekki verið fjarlægðar ennþá. Jafnframt telur hann að ekki sé hægt að losna alveg við stjórnkerfishindranir, en er þess fullviss að ástandið megi bæta.
Næstu þrjú árin mun Ole Norrback stjórna norrænum umræðugrundvelli um stjórnkerfishindranir og hann telur hann skapa einstakt tækifæri til þess að stuðla að afnámi þeirra.
Vettvangurinn fær sterka stöðu. Á hverju ári munum við skila nákvæmri skýrslu beint til forsætisráðherranna þar sem bent verður á kerfishindranir og lagðar til breytingar og lausnir, segir Ole Norrbeck.
Hann telur að þetta framtak sýni að norrænu ríkisstjórnirnar séu áhugasamar um að finna lausnir.
-Það fyrsta sem ég mun gera er að biðja ríkisstjórnir Norðurlanda um að samræma lagasetningu hvað. Ég tel einnig að bæta verði upplýsingagjöf til borgaranna því á endanum eru það þeir sem tapa á kerfishindrunum segir Ole Norrback.
Þær kerfishindranir sem þessi norrænn umræðugrundvöllur um stjórnkerfishindranir mun leggja áherslu á til að byrja með eru skatta – og velferðarmál. Á næstu þremur árum verður einnig litið á mál sem tengjast eftirlaunum, prófgráðum, símkostnaði, reglum um tekjur eftirlaunaþega o.fl. Skrifstofa norræns umræðugrundvallar um stjórnkrefishindranir verður í aðalstöðvum Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn.
