Document Actions

Umræður um varnar- og öryggismál á Norðurlöndum

Norðurlandaráð vill að aftur fari fram umræður um tiltekið mál í öllum norrænu þjóðþingunum. Að þessu sinni eiga umræðurnar að fjalla um stefnu í norrænu varnar- og öryggissamstarfi.

29/01 2013

Umræður um stjórnsýsluhindranir 2012. Nú leggur Norðurlandaráð til samsvarandi umræður í þjóðþingunum um varnar- og öryggismál

Ljósmyndari
Job & Magt / Johan Wessman

Að tilstuðlan Vettvangs um afnám stjórnsýsluhindrana var árið 2012 efnt til umræðna um vandamál sem tengjast stjórnsýsluhindrunum, sem hafa áhrif jafnt á fyrirtæki og einstaklinga á Norðurlöndum.  Umræðurnar fóru allar fram í sama mánuði, nánar til tekið í apríl.

Umræðurnar stuðluðu, að mati forsætisnefndar Norðurlandaráðs, að auknu átaki til að vinna á stjórnsýsluhindrunum, og nú vill ráðið efna til samskonar átaks á sviði varnar- og öryggismála.

Markmiðið er að umræðurnar fari fram í öllum norrænu þingunum fyrir sumarfrí.

Þemaumræður

Ákvörðun um að leggja áherslu á málið, á þemaþinginu sem haldið verður í Stokkhólmi í apríl, er enn frekara dæmi um hve mikið Norðurlandaráð lætur varnar- og öryggismálastefnu til sín taka.

Tengiliðir

Bodil Tingsby
Sími +45 33 96 03 57
Tölvupóstur bot@norden.org