Ungir frumkvöðlar eiga að stöðva spekileka
Frumkvöðlamenntun á í framtíðinni að koma í veg fyrir brottflutning ungs fólks frá jaðarsvæðum Norðurlanda.
„Ríkisstjórnirnar geta ekki lengur setið aðgerðarlausar. Við verðum að stöðva þá óheillaþróun sem við sjáum á jaðarsvæðunum og tryggja að þar verði einnig hagvöxtur og nýsköpun á vinnumarkaði “, segir Mogens Jensen.
- Ljósmyndari
- Magnus Fröderberg/norden.org
Framvegis þarf að bjóða upp á frumkvöðlamenntun strax í grunnskólanum. Alla vega ef menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs fær að ráða. Þannig vill nefndin styrkja uppbyggingu á jaðarsvæðum Norðurlanda og stöðva brottflutning unga fólksins frá svæðunum.
„Alls staðar á Norðurlöndum er verið að loka skólum í litlum bæjum og við sjáum að unga fólkið sækir til stærri bæjanna. Það þýðir að lítil samfélög missa þá starfskrafta, sem annars myndu byggja svæðið upp. Ef ekkert verður að gert er hætta á að jaðarsvæðum Norðurlanda blæði hreinlega út og allir flytji þaðan“, segir Mogens Jensen, formaður menningar- og menntamálanefndar Norðurlandaráðs.
Nefndin vill efla frumkvöðlamenningu meðal ungs fólks. Reynslan frá Noregi sýnir að frumkvöðlamenntun í grunnskólum lítilla byggða tryggir að fólk sér tækifæri og tekur þátt í samstarfi í sínu nærumhverfi. Frumkvöðlamenntun sem hefst snemma á því að tryggja framþróun í minni bæjarfélögum og samkeppnishæfni þeirra gagnvart þéttbýlinu.
„Reynsla frá Noregi sýnir að nemendur sem fá frumkvöðlamenntun, taka uppbyggingu nærsamfélagsins í eigin hendur. Af því að þeir hafa byggt upp færni sína þegar í grunnskóla eru miklu meiri möguleikar á því að þeir komi til baka að loknu námi.“
Menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs hvetur ríkisstjórnir norrænu ríkjanna til að byrja á því að efla frumkvöðlamenntunina í grunnskólum. Jafnframt að auka framboð á námsleiðum og framhaldsmenntun á sviði frumkvöðlafræða. Einnig er lagt til að sett verði á laggir norrænt meistaranám í frumkvöðlafræðum og nýsköpun.
„Ríkisstjórnirnar geta ekki lengur setið aðgerðarlausar. Við verðum að brjóta upp þá óheillaþróun sem við sjáum á jaðarsvæðunum og tryggja að þar verði einnig hagvöxtur og nýsköpun á vinnumarkaði. . Það er forsenda þess að íbúar taki virkan þátt í samfélaginu og efli sjálfstæði þeirra og sjálfsmynd“, segir Mogens Jensen.
Á fundi sínum í Ósló 14. apríl mun menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs ræða nánar efni tillögunnar sem send verður Norrænu ráðherranefndinni og þar með norrænu ríkisstjórnunum.
