Document Actions

Ungmenni ryðja sér nýjar brautir í norrænum listum

Norræni menningarsjóðurinn tilkynnti í dag hver fengi þrjár milljónir danskra króna (um 63 milljónir íslenskra króna) til að halda Norræna listahátíð unga fólksins ársins 2013-2014. Ungmenni hvaðanæva að frá Norðurlöndum taka þátt í hátíðinni.

01/06 2012

Topias Tuononen och Tero Sarkkinen från Teater Satama vill att den vandrande kulturfestivalen ska riva kulturbarriärer och ge de medverkande ungdomarna många gränsöverskridande vänskaper.

Listahátíðin „Norðurljós“ mun fara á milli landa þar sem norræn börn og ungmenni slást í förina. Leiðangurinn verður skapandi og fjölmenningarlegur. Landsvæði víðs vegar á Norðurlöndum verða könnuð og sú menning og listir sem þar er að finna.

Dómnefnd sjóðsins skipuðu fimm ungmenni auk tveggja fastra sérfræðinga sjóðsins. Nefndin ákvað að veglegur styrkurinn skyldi veittur þremur aðilum sem unnið hafa hugmyndina að Norðurljósahátíðinni: Finnska ungmennaleikhúsið Teater Satama frá Joensuu og Tornedalsteatern frá Pajala í Norður-Svíþjóð sjá um listrænt innihald hátíðarinnar. Kynningar og heimildavinna verður í höndum íslensku menningarfrömuðanna Hlínar Jóhannesdóttur og Vilborgar Einarsdóttur en báðar hafa þær mikla reynslu af menningarsköpun og menningarmiðlun ungs fólks.

- Norræna menningarsjóðnum er sönn ánægja að styrkja aðstandendur Norðurljósa til að miðla menningu ungs fólks um öll Norðurlönd fjarri höfuðborgum landanna. Aðstandendur hátíðarinnar eru allir nýir í norrænu menningarsamstarfi og við hjá sjóðnum bjóðum þá hjartanlega velkomna til leiks í barna- og ungmennastarfið, segir Cristina Husmark-Pehrsson formaður sjóðsstjórnar.

Forkólfur verkefnisins, Tero Sarkkinen frá Satama leikhúsinu, segir hugmyndina að hátíðinni hafa fæðst á þeim mörgu leikferðalögum sem leikhúsið hefur farið í. 

–  Við viljum sýna hvers ungt fólk er megnugt. Ungmennin skapa list af fremstu gerð sem við komum á framfæri. Markmið okkar er að auka þekkingu á menningu norrænu nágrannaþjóðanna og draga úr fordómum, segir Tero Sarkkinen.

Topias Tuononen er fjortán ára og starfar með leikhúsinu. Hann nefnir sérstaklega þá vináttu sem myndast í menningarstarfi sem þessu. 

– Þegar við komum heim úr síðustu leikferð  fékk ég 70 vinarbeiðnir á Facebook. Margir þeirra eru raunverulegir vinir mínir, segir Topias.

Í umsögn dómnefndar segir: Að mati dómnefndar er hér á ferðinni óhefðbundin og vel útfærð hugmynd sem kallar ungmenni á öllum Norðurlöndum til leiks og tengir þau saman. Nefndin telur nýskapandi og framsýnt að hátíðin sé hugsuð sem ævintýraferð með mörgum viðkomustöðum víðs vegar um Norðurlönd þar sem endanlegur áfangastaður er sameiginleg listahátíð í Norðaustur-Finnlandi árið 2014. Þannig tengir verkefnið Norðurlönd í austri og vestri og ólíkir norrænir menningarheimar skapa eina heild. Lýsingin á verkefninu ber vott um áhuga og eldmóð sem lætur engan ósnortinn. Ungu fulltrúarnir í dómnefnd voru sammála um að þetta væri sú hátíð sem þá langaði helst til að taka þátt í og ennfremur að hún geislaði af listrænni fagmennsku og brennandi áhuga á list og menningu ungs fólks. Teater Satama í Finnlandi, Tornedalsteatern í Svíþjóð og íslenska menningarmiðlunarteymið Ursus Parvus hafa samanlagt víðtækt listrænt tengslanet um öll Norðurlönd og góða blöndu sérþekkingar á ýmsum hliðum æskulýðsmenningar auk menningar minnihlutahópa, miðlunar og heimildagerðar.

Norðurljós var valið úr 19 framúrskarandi umsóknum.

Styrkþegarnir hefjast nú handa við að leiða saman ungt fólk þvert yfir höf, menningarheima, tungumál og landamæri Norðurlanda til sameiginlegrar listahátíðar í Austur-Finnlandi.

15-20 ungmenni munu fara í hverjum hóp undir fána Norðurljósahátíðarinnar með leikhús, dans, fjölleikahús, myndlist og tónlist og uppgötva nýja og gamla menningu á hverjum stað.

Hátíðin hefst samtímis á öllum Norðurlöndum með þátttöku ungs fólks í Grænlandi og Færeyjum, á Íslandi, í Noregi og Danmörku og nær hámarki sumarið 2014 með sameiginlegri listahátíð sem fer um Austur-Finnland í tvær vikur. Fimm ungir listahópar leggja í ævintýraferð í bílum, lestum, rútum, bátum og flugvélum, fótgangandi, dansandi og syngjandi og troða víða upp á leiðinni til Joensuu.

UPPLÝSINGAR

Teater Satama, Finnlandi

Teater Satama er ungmennaleikhús í Joensuu fyrir aldurshópinn 13-17 ára og er ætlað að efla fjölmenningarlegt æskulýðsstarf í Austur-Finnlandi. Fimmtungur þeirra 50-60 ungmenna sem starfa í leikhúsinu er af erlendum uppruna. Í Satama leikhúsinu tjá ungmennin sig listrænt í öruggu og hvetjandi umhverfi og vinna sýningar sem vekja áhorfendur til umhugsunar. Unga fólkið lærir þannig að vinna saman‚ axla ábyrgð‚ taka frumkvæði og temja sér umburðarlyndi.

www.teatterisatama.net

Tero Sarkkinen leikstjóri tero.sarkkinen@teatterisatama.net Sími +358 442067661

Samstarfsaðilar:

Tornedalsteatern, Svíþjóð

Leikhúsið er með aðsetur í bænum Pajala í Norður-Svíþjóð og hefur unnið í 25 ár að því að þróa og kynna barna- og ungmennaleikhús í Tornedalen. Þar er unnið á meänkieli (sænska: tornedalsfinska) en það er mállýska sem töluð er á finnskumælandi svæðum Norðurkollunnar. Meänkieli þýðir „málið okkar“ og er opinbert minnihlutamál í Svíþjóð.

Í sýningum Tornedalsteatern er unnið með tungumálið á listrænan hátt. Leikhúsið á náið samstarf við leikskóla og skóla og einnig fagfólk og áhugafólk.

www.tornedalsteatern.com

Lars G. Thelestam leikstjóri teater@tornedalsteatern.com Sími +46-70-6662220

Ursus Parvus, Íslandi

Hlín Jóhannesdóttir og Vilborg Einarsdóttir eru blaðamenn, ljósmyndarar, kvikmyndatökumenn og -framleiðendur, fjölmiðlaráðgjafar, skríbentar og heimildagerðarmenn með aðsetur í Reykjavík og búa yfir mikilli reynslu frá Grænlandi og Bandaríkjunum auk Íslands. Þær stofnuðu saman framleiðslu- og almannatengslafyrirtækið Ursus Parvus. Hlín og Vilborg munu annast kynningu til norrænna fjölmiðla og aðstoða ungmennin við að skrásetja hátíðina með kvikmyndum‚ bloggi og á félagslegum miðlum.

Vilborg Einarsdóttir, vilborg.einarsdottir@gmail.com Sími+354 866 7192

Tengiliðir

Gitte Merrild
Sími +45 3396 0268
Tölvupóstur gime@norden.org