Ungt fólk án menntunar á ekki upp á pallborðið í samfélaginu
Þingmenn frá öllum norrænu ríkjunum hafa fylkt liði gegn atvinnulífi og stofnbundnu menntakerfi. Hugsið út fyrir rammann og viðurkennið færni og hæfni unga fólksins, jafnvel þó það hafi ekki skírteini til sönnunar, segir í áskorun þeirra.
„Við leggjum til að ríkisstjórnir norrænu ríkjanna móti norræna framtíðarstefnu um færniþróun og atvinnutækifæri unga fólksins", segir Mogens Jensen, formaður menningar- og menntamálanefndar Norðurlandaráðs.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Ungt fólk án formlegrar menntunnar á að eiga kost á færnimati, til að bæta aðgengi þeirra að störfum, starfsþjálfun og framhaldsmenntun. Menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs hvetur atvinnulífið og menntakerfið til að opna dyrnar fyrir þeim stóra hópi ungs fólks, sem hefur enga formlega menntun .
"Við vitum t.d. að fimmti hver æskumaður í Danmörku, lýkur engu formlegu námi. Þetta eru ógnvænlega háar tölur, en þó svo að unga fólkið sé ekki með prófskírteini upp á vasann, þýðir það ekki að það sé án þekkingar og færni. Það má ekki gerast að bæði vinnumarkaðurinn og menntakerfið horfi fram hjá þessum stóra hópi ungs fólks", segir Mogens Jensen, formaður menningar- og menntamálanefndar Norðurlandaráðs.
Þingmenn nefndarinnar vilja því að ríkisstjórnir allra norrænu ríkjanna fimm sameinist um stefnumörkun um hvernig menntakerfið og atvinnulífið geti sameinast um að nýta og viðurkenna færni þeirra þúsunda ungra karla og kvenna, sem aldrei hafa lokið formlegri menntun.
„ESB kynnti nýlega stefnu um ungt fólk á vinnumarkaði og færniþróun þess. Það er skref í rétta átt, en við leggjum til að norrænu ríkisstjórnirnar gangi enn lengra og móti norræna framtíðarsýn hvað varðar færniþróun og atvinnutækifæri ungs fólks. Við leggjum til að sett verði á laggirnar samstarfsnet milli sveitarfélag, atvinnulífs og menntakerfa, sem tryggi ungu fólki atvinnu. Västerås sveitarfélagið í Svíþjóð hefur til að mynda sett af stað atvinnuverkefni sem getur orðið öðrum norrænum ríkjum hvatning", segir Mogens Jensen.
Menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs telur að bætt ráðgjöf, stuðningur og viðræður milli aðila vinnumarkaðar og menntakerfisins geti meðal annars stuðlað að því að draga úr atvinnuleysi ungs fólks sem fer vaxandi. Atvinnulífið og háskólar verða að vera opnir þessum stóra hópi ungs fólks sem ekki hefur háskólapróf.
„Við erum þess fullviss, að aukið samstarf atvinnulífs, menntakerfa og sveitarfélaga muni tryggja aukið samræmi milli þarfa einstakra fyrirtækja fyrir statrfsfólk og þeirrar einstöku reynslu sem ungt fólk býr að. Við megum ekki hætta að hugsa út fyrir rammann þótt það sé kreppa. Raunin er sú að fjöldi ungra manna og kvenna býr að mikilli þekkingu og reynslu. Unga fólkið kemst ekki að, það er sóun á góðri þekkingu og auðlind, það getur hvorki þjóðfélagið í heild né unga fólkið liðið", segir Bente Dahl, varaformaður nefndarinnar.
Tengiliðir
Anne-Mette Persdotter
Sími
+45 33 96 04 50
Tölvupóstur
amp@norden.org
