Utanríkisráðherrarnir: "Styrkja ber samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna"
Í blaðagrein í aðdraganda utanríkisráðherrafundar Norðurlanda í Kaupmannahöfn í dag, kemur fram að einhugur er um að efla norrænt samstarf á sviði utanríkis- og varnarmála. Að auki vilja ráðherrarnir efla samstarf við grannríkin.
Lene Espersen utanríkisráðherra Danmerkur mun ásamt norrænum starfssystkinum þróa norrænt samstarf um utanríkis- og varnarmál. Utanríkisráðherrarnir hittast í Kaupmannahöfn á fimmtudag.
- Ljósmyndari
- Mats Holmström
"Forsenda aukins samstarfs norrænu ríkjanna er að það gagnist þeim öllum. Hins vegar eigum við ekki að takmarka okkur við norrænt samstarf þegar úrlausnarefnin krefjast annars. Stundum er aðkoma annarra ríkja hagstæð, til dæmis Eystrasaltsríkjanna, Rússlands eða annarra ríkja við Eystrasalt. Líta verður á norrænt samstarf sem viðbót við ESB og vestrænt samstarf ", skrifa ráðherrarnir í greininni.
Norrænt samstarf um utanríkis- og varnarmál hefur lengi verið í umræðunni. Tillögur í svonefndri Stoltenberg-skýrslu um aukið samstarf hafa veið vegvísar í umræðunni undanfarið ár en meðal þeirra tillagna sem þar er að finna er sameiginleg vöktun norrænna hafsvæða, loftrýmis og Norðurskautsins ásamt málefnum eins og leitar- og björgunaraðgerðum á norðurhöfum. Þar að auki er kastljósinu beint að sameiginlegum aðgerðum gegn tölvuþrjótum og mögulegri uppbyggingu á því samstarfi sem þegar er fyrir hendi á hernaðarsviðinu.
"Í Stoltenberg-skýrslunni erum við hvött til þess að axla sameiginlega ábyrgð á Norðurlöndum sem heimshluta og á grannsvæðum okkar. Öryggisbrestur á Norðurlöndum hefur að sjálfsögðu einnig áhrif á grannríki okkar. Þetta er ástæða þess að við höfum tekið virkan þátt í samstarfinu á Norðurskautssvæðinu, rétt eins og við höfum tekið þátt í Esytrasalts- og Barentssamstarfinu. Stöðugleiki á grannsvæðum okkarer í þágu allra norrænu ríkjanna", segja ráðherrarnir í greininni.
Margir hafa fjallað um utanríkis- og varnarmál á Norðurlöndum og á Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi árið 2009 voru meðal annars töluverðar umræður um þær tillögur sem settar voru fram í Stoltenberg-skýrslunni. Þá bentu utanríkisráðherrarnir á að umræða um norræna utanríkis- og varnarmál væri nú áhugaverðari og þróttmeiri en um langt skeið. Þessi skoðun er ítrekuð í aðdraganda ráðherrafundarins í Kaupmannahöfn.
"Sameiginleg gildi norrænu ríkjanna og hefð fyrir samstöðu og óformlegum samskiptum eru grunnurinn að sameiginlegum áhrifum. . Mikilvæg forsenda er að norrænt samstarf á sviði utanríkis- og varnarmála haldi áfram að þróast þegar við tökumst á við úrlausnarefni komandi áratuga. Það er sameignlegt markmið okkar", skrifa utanríkisráðherrarnir að lokum.
Greinin er undirrituð af Lene Espersen, Danmörku, Carl Bildt, Svíþjóð, Jonas Gahr Störe, Noregi, Alexander Stubb, Finnlandi og Össuri Skarphéðinssyni.
Greinin öll í dagblaðinu Sydsvenskan
Tengiliðir
Mats Holmström
Sími
+45 33 96 02 91
Tölvupóstur
maho@norden.org
