Úttekt á fjármögnun sprotafyrirtækja á Norðurlöndum

18.12.17 | Fréttir
Dagfinn Høybråten og Idar Kreutzer
Photographer
André Jamholt / Nordisk ministerråd
Norrænu ríkin eru sammála um að kanna aðgengi að áhættufjármagni fyrir sprotafyrirtæki. Könnunin er liður í sameiginlegum aðgerðum sem eiga að styrkja samkeppnishæfni og aðlögunarfærni norrænna fyrirtækja. Idar Kreutzer sem er framkvæmdastjóri Finans Norge leiðir verkefnið.

„Straumhvörf á Norðurlöndum“ er eitt þriggja áherslumála Norðmanna í formennskutíð sinni í Norrænu ráðherranefndinni 2017. Markmiðið er að styðja samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja og hæfni þeirra til nýsköpunar og grænna umskipta. Bakgrunnurinn eru efnahagslegar, umhverfislegar og tæknilegar breytingar sem norrænu ríkin standa frammi fyrir og hafa í för með sér bæði áskoranir og mikla möguleika. Úttektin á að draga upp mynd af þörfum og möguleikum norrænnar fjármögnunarleiðar fyrir fjárfestingar í sprotafyrirtækjum á fyrstu stigum starfsemi þeirra.
 
„Við erum afar ánægð með að Idar Kreytzer hefur tekið verkefnið að sér. Það hefur verið áherslumál að auka norræna samkeppnishæfni í grænu umskiptunum í formennskutíð Noregs í Norrænu ráðherranefndinni 2017. Við bindum vonir við mat og ráð Idars Kreutzer sem verða lögð fram þegar skýrslan er tilbúin,“ segir Frank Bakke-Jensen, samstarfsráðherra Norðurlanda í Noregi.
 
Idar Kreutzer er framkvæmdastjóri Finans Norge. Hann er viðskiptafræðingur frá norska verslunarháskólanum og hefur gegnt ýmsum áberandi stjórnar- og stjórnendastöðum bæði í einkageiranum og opinbera geiranum í Noregi.

 

Síkvikt svæði með góðar forsendur


„Norðurlöndin eru síkvikt svæði með góðar forsendur til þess að skapa verðmæti og störf í heimi þar sem á sér stað stafræn þróun og umskipti með lofslagsvænni tækni. Skilvirkur fjármálamarkaður og aðgangur að áhættufjármagni á fyrstu stigum er nauðsynleg forsenda þess að nýsköpun geti orðið að störfum í fyrirtækjum í vexti. Það er gleðiefni að Norræna ráðherranefndin og ríkisstjórnir norrænu ríkjanna óski eftir nánari úttekt á þessum aðstæðum og ég hlakka til að hefjast handa við þetta mikilvæga verkefni.“

Samningurinn við Kreutzer var undirrritaður af Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar. Kreutzer hefur störf við útttektina í janúar 2018 og skýrslan á að vera tilbúin í september.

„Við búumst við því að úttektin veiti heildarmynd af aðgangi fyrirtækja að áhættufjármagni á fyrstu stigum og veiti þar með góðan grunn að því því að meta þörf og möguleika á sameiginlegum norrænum aðgerðum á þessu sviði í framtíðinni,“ segir Dagfinn Høybråten framkvæmdastjóri.