Document Actions

Velferðin er háð því að ungt fólk hafi vinnu

"Það verður að segja nemendum hvaða færni vinnumarkaðurinn og atvinnulífið þarfnast og það getur ekki verið svo erfitt að ráða ungt fólk í vinnu". Þetta sagði Siv Friðleifsdóttir, formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs, eftir að hafa hlustað á umræðurnar sem mörkuðu upphaf tilraunaverkefnis Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar um þá sem standa utan vinnumarkaðar á Norðurlöndum.

26/10 2009
Siv Friðleifsdóttir

"Við á Norðurlöndunum höfum ekki efni á að láta vinnufæra einstaklinga ganga atvinnulausa ef við ætlum að viðhalda norræna velferðarsamfélaginu", sagði Siv Friðleirsdóttir formaður velferðarnefndarinnar í Norðurlandaráði.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Vaxandi atvinnuleysi, sérstaklega meðal ungra innflytjenda, ungs fólks með skert starfsafl og þeirra sem hætt hafa í framhaldsskóla án þess að ljúka prófi var umræðuefnið í Menningarhúsinu í Stokkhólmi þann 26. október.

"Við á Norðurlöndunum höfum ekki efni á að láta vinnufæra einstaklinga ganga atvinnulausa ef við ætlum að viðhalda norræna velferðarsamfélaginu", sagði Siv Friðleifsdóttir.

Stefnulausir nemendur, verða fullorðnir atvinnulausir einstaklingar.

Á sviðinu sátu ungir norrænir einstaklingar með reynslu af því að vera utanveltu á vinnumarkaði við hliðina á ungum norrænum stjórnmálamönnum.

Margir þeirra sem til máls tóku lögðu áherslu á frumkvöðlastarf og einstaklingsbundna leiðsögn með það að markmiði að fjölga þeim sem ljúka skólagöngu.

"Stefnulausir nemendur, verða fullorðnir atvinnulausir einstaklingar", sagði Svíinn Linus Gisborn, sem sjálfur er "dropout" úr menntaskóla.

Bæði norskir og sænskir fulltrúar samstarfsverkefna milli opinbera geirans og einkafyrirtækja lögðu áherslu á einstaklingsbundna markmiðasetningu og eftirfylgni með hverjum og einum einstaklingi.

Norræn hugmyndaveita og hnattvæðingaráætlanir

Norski jafnaðarmaðurinn Fredrik Bjørnbekk og Johan Pettersson fulltrúi miðflokksins í Svíþjóð höfðu trú á norrænni hugmyndaveitu - þar sem sveitarfélög gætu sótt hugmyndir sem virkað hefðu annars staðar.

Kortlagning á því sem vel hefur gengið á hinum ýmsu stöðum á Norðurlöndunum er einmitt eitt af markmiðunum með tilraunaverkefni Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar um þá sem eru utanveltu á norræna vinnumarkaðnum.

"Við viljum kanna hverjir eru að gera rannsóknir á þeim sem eru utanveltu á vinnumarkaðnurm og á því sem vel tekst til", segir Tone Mørk framkvæmdastjóri velferðarmiðstöðvarinnar.

Tilraunaverkefni Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar er hluti af hnattvæðingaráætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. Góð menntun fyrir unga sem aldna.

Það var upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar, Norden i Fokus í Stokkhólmi, sem bauð til fundarins í Menningarhúsinu í samstarfi við Norrænu velferðarmiðstöðina og Norrænu nefndina um málefni fatlaðra.

Tengt efni