Verðlaunum rignir yfir Stokkhólm
Virtustu listamenn Norðurlanda og baráttumenn um náttúru- og umhverfismál fengu afhent verðlaun Norðurlandaráðs fyrir bókmenntir, kvikmyndir, tónlist og náttúru og umhverfisvernd í Menningarhúsinu í Stokkhólmi í tengslum við Norðurlandaráðsþingið.
Í mjög svo persónulegri þakkarræðu Petterson, þakkaði hann foreldrum sínum sem hvort um sig hefðu opnað honum sýn inn í veröld bókarinnar. Hvað varðaði val dómnenfndarinnar, sagði Petterson: „Vel gert!"
- Ljósmyndari
- Magnus Fröderberg/norden.org
Einn af öðrum tóku verðlaunahafar við verðlaununum, sem Sinikka Bohlin forseti Norðurlandaráðs afhenti, og þökkuðu hver fyrir sig fyrir verðlaun sem eru 350.000 danskar krónur.
Norski rithöfundurinn Per Petterson hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir verk sitt "Jeg forbanner tidens elv", en að mati dómnefndar liggur styrkur bókarinnar í eftirfarandi:
„Í skáldsögunni lýsir aðalpersónan reynslu sinni og brotakenndum minngum um áföll í eigin fjölskyldu. Petterson lýsir á ljóðrænu og hæglátu máli hversu erfitt það er að segja hvert öðru það sem mikilvægast er”.
Í mjög svo persónulegri þakkarræðu Petterson, þakkaði hann foreldrum sínum sem hvort um sig hefðu opnað honum sýn inn í veröld bókarinnar. Hvað varðaði val dómnenfndarinnar, sagði Petterson:
„Vel gert!"
Danski kvikmyndaleikstjórinn og handritshöfundurinn Lars von Trier og framleiðandinn Metta Louise Foldager fengu Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir kvikmyndina „Antichrist“.
Meta Louise Foldager þakkaði fyrir verðlaunin fyrir þeirra hönd og benti um leið á hve ótrúlegum forréttindum norrænir listamenn nytu.
„Það eru ekki á mörgum stöðum í heiminum, sem listamenn njóta þess frelsis sem þeir hafa hér á Norðurlöndunum, þar sem þeir fá meira að segja styrki og stuðning frá hinu opinbera. Það skiptir sköpum fyrir listrænt frelsi okkar og þróun sköpunarkrafts okkar.
Finnski tónlistarmaðurinn og klarinettuleikarinn Kari Kriikku hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs, vegna þess að hann að mati dómnefndarinnar:
„…er einstakur klarinettleikari. Tjáning hans einkennist af sveigjanleika og jákvæðri tónlistargleði - hann er tónlistarmaður í orðsins bestu merkingu".
Þakklátur Kari Kriikku sagði dómnefndina vera kjarkaða að verðlauna tónlistarmann og ekki eins og venjulega stjórnanda eða tónsmið.
Kerstin Andersson var stolt og glöð þegar hún tók við Náttúru- og umhverfisverðlaunum Norðurlandaráðs fyrir verkfnið „ I Ur och Skur" („í öllu veðri") fyrir hönd Útivistar í Svíþjóð.
Verkefnið „I Ur och Skur" er dæmigert verkefni sem stuðlar að vellíðan barna og skilningi þeirra á náttúrunni á tímum þegar sífellt fleiri upplifanir eru í gegnum netið. Verkefnið er jafnframt líkan sem nýta má til að kveikja hugmyndir um sambærileg verkefni alls staðar á Norðurlöndum, og sem hefur þegar kveikt hugmyndir", segir í rökstuðningi dómnefndarinnar.
Myndband (Youtube) með samantekt á þakkarræðu verðlaunahafa kvikmyndaverðlaunanna og viðtal
Myndband (Youtube) frá afhendingu bókmenntaverðlaunana og viðtal við Per Petterson
Tengiliðir
Jesper F. Schou-Knudsen
Sími
+45 33 96 03 55
Tölvupóstur
jsk@norden.org
