Document Actions

Vestur-Norðurlönd geta stuðlað að sjálfbærum fiskveiðum í ESB

Vestur-Norðurlönd hafa mikla reynslu af fiskveiðistjórnun sem stuðla að sjálfbærni og geta miðlað af mikilvægri reynslu við endurskoðun fiskveiðistefnu ESB. Þetta er skoðun Helga Hjörvar, forseta Norðurlandaráðs.

09/06 2010
Helgi Hjörvar

Vestur-Norðurlönd hafa mikla reynslu af sjálfbærri stjórnun fiskstofna og geta miðlað af mikilvægri reynslu við endurskoðun fiskveiðistefnu ESB.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

- Norðurlandaráð hefur gefið út yfirlýsingu um þau markmið sem við teljum að eigi að vera í forgrunni við endurskoðun ESB á fiskveiðistefnu sinni, segir Helgi Hjörvar, en hann sat þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins um fiskveiðar sem haldin var á Sauðárkróki þriðjudaginn 8. júní.

Mikilvægt er fyrir Norðurlandaráð að hafa áhrif við endurskoðun á fiskveiðistefnu ESB þannig að hún stuðli að sjálfbærri nýtingu fiskistofna til framtíðar. ESB hefur viðurkennt að fiskveiðistefnan hafi ekki skilað tilætluðum árangur hingað til og Norðurlöndin hafa lengi reynt að hafa áhrif á endurskoðun hennar.

- Sjálfbær stjórnun náttúruauðlinda er eitt mikilvægasta verkefnið sem heimurinn stendur andspænis, segir Helgi Hjörvar.

Josef Motzfeldt, formaður Vestnorræna ráðsins og forseti grænlenska landsþingsins, sagði á ráðstefnunni að hann vonaðist til þess að Vestnorræna ráðið gæti verið einhuga í afstöðu sinni til fiskveiðistefnu ESB.


Hann sagði einnig að hann vonaði að vestnorrænu ríkin þrjú myndu eignast eins fiskveiðistjórnunarkerfi í framtíðinni.

En hann ítrekaði jafnframt að lítil skref skiptu einnig máli þegar um er að ræða samstöðu vestnorrænu ríkjanna um verndun fiskstofna.

Á ráðstefnunni var fjallað um kosti og galla ólíkra veiðistjórnunarkerfa á Íslandi, í Færaeyjum, á Grænlandi og í Noregi.

Kent Olsson frá Norðurlandaráði sat einnig þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins sem áheyrnarfulltrúi.

Grænland, Færeyjar og Ísland eru aðilar að Vestnorræna ráðinu.

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org