Document Actions

Við verðum að berjast gegn ofbeldi á konum

Baráttan gegn ofbeldi á konum er forgangsverkefni innan norrænu jafnréttisbaráttunnar, þetta sagði norski jafnréttisráðherrann í ræðu sinni á kvennaráðstefnunni (CSW54), en meðal áheyrenda þar var framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.

Mar 03, 2010
Audun Bjørlo Lysbakken

Audun Bjørlo Lysbakken, jafnréttisráðherra Noregs.

Ljósmyndari
Silje Bergum Kinsten/norden.org

„Á meðan konur eru fórnarlömb ofbeldis, verður jafnrétti kynjanna ekki náð, hvorki í norðri né suðri", sagði Audun Bjørlo Lysbakken jafnréttisráðherra Noregs, í ræðu sem hann hélt fyrir þátttakendur alls staðar að úr heiminum, á þriðja degi ráðstefnunnar, sem haldin er í New York.

Samkvæmt upplýsingum frá WHO verður þriðja hver kona í heiminum fyrir ofbeldi einhvern tíma á lífsleiðinni.

„Ofbeldi gegn konum á aldrei rétt á sér og það á ekki að líða. Við verðum að berjast gegn ofbeldi á konum", sagði Lysbakken, og ráðstefnugestir stóðu upp og klöppuðu fyrir honum á CSW54.

Norski jafnréttisráðherrann lagði einnig á það áherslu að mikilvægt væri að styrkja stöðu kvenna til að efla efnahagsvöxt og þróun.

„Efling stöðu kvenna og stúlkna er forsenda efnahgasþróunar. Ef við vanrækjum að huga að stöðu kvenna, veikir það efnahagslega þróun", sagði Lysbakken en hann var einn af frummælendum á fundinum ásamt Ban Ki-Moon framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.

Mikið var klappað fyrir Lysbakken og fundarstjóri hafði orð á því í lokin að líklega væru margir í salnum sem gætu hugsað sér að flytja til Noregs.

Fulltrúar á CSW54 ráðstefnunni voru alls staða að úr heiminum, fólk sem vinnur að jafnréttismálum og því að styrkja stöðu kvenna . Á þinginu í ár er sjónum beint að því hvað áunnist hefur í jafnréttismálum í heiminum frá því að kvennaráðstefna Sameinuðu þjóðanna var haldin í Peking árið 1995. Norræna ráðherranefndin um jafnréttismál tekur þátt í ráðstefnunni.

Tengt efni
  • Alþjóðasamfélagið getur lært af stöðu jafnréttismála á Norðurlöndum (News Item)

    Norrænu ríkin hafa náð langt í jafnréttismálum, það má þakka pólitískum vilja og norræna velferðarlíkaninu. Engu að síður er enn langt í lausnir í mörgum málum, s.s. kynbundnu ofbeldi, fastmótuðum ofbeldi gegn konum, staðalímyndumir og kynbundnu launamisrétti. Jafnréttisráðherrar Norðurlanda kynntu árangur og helstu viðfangsefni í jafnréttismálum á hliðarviðburði á kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 2. mars, en þar voru fulltrúar alls staðar að úr heiminum.

  • Norrænn stuðningur við nýja stofnun jafnréttismála hjá Sameinuðu þjóðunum (News Item)

    Norðurlöndin munu styðja nýja stofnun innan Sameinðu þjóðanna sem mun vinna að jafnréttismálum og því að styrkja stöðu kvenna. Þetta kom fram í ræðum norrænna jafnréttisráðherra á kvennaráðstefnunni (CSW54) og þegar þeir tóku þátt í norrænni námstefnu hjá Sameinuðu þjóðunum 2. mars.