Document Actions

Viðbrögð utanríkisráðherra Norðurlanda við rússneskri eftirlitsheimsókn

Á fundi sínum á föstudag lýstu norrænu utanríkisráðherrarnir undrun vegna rússneskrar eftirlitsheimsóknar í síðustu viku á upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kalíníngrad. Send verður yfirlýsing frá norrænu sendiherrunum í Moskvu um málið.

04/05 2013

Svíþjóð fer í ár með formennsku óformlegs samastarfs Norðurlanda um utanríkis- og öryggismál. Af því tilefni funduðu norrænu utanríkisráðherrarnir í skerjagarðinum utan við Stokkhólm í síðustu viku. Á dagskrá voru málefni eins og norrænt samstarf innan Sameinuðu þjóðanna og Norðurheimskautið. Á blaðamannafundi sem haldinn var í framhaldi af fundinum voru ráðherrarnir spurðir um rússnesku heimsóknina á upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kalíníngrad.

„Við lýsum undrun okkar á því að Rússar nýti nýja lagasetningu, sem við höfum haft miklar skoðanir á og fari í eftirlitsheimsókn á upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar", sagði Carl Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar og gestgjafi fundarins. Hann vísaði í samskonar gagnrýni Evrópusambandsins á lögin.

Erkki Tuomioja utanríkisráðherra Finna taldi líklegt að gripið yrði til aðgerða í næstu viku. Þær felast í því að norrænu sendiherrarnir munu í sameiningu fara fram á viðtal við til að mynda aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands og gera munnlega þar grein fyrir skoðun sinni á því sem gerðist.

Framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar þykir eftirlitsheimsóknin á skrifstofuna í Kalíníngrad miður.

„Þetta veldur hnökrum á að öðru leiti góðu samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar og Rússlands", sagði Dagfinn Høybråten. Framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar mun á næstunni ræða málið við rússnesk stjórnvöld.

Tengiliðir

Kenneth Broman
Sími +45 24 69 94 03
Tölvupóstur kbr@norden.org

Bodil Tingsby
Sími +45 33 96 03 57
Tölvupóstur bot@norden.org