- Viðurkennum og styðjum þátttöku kvenna
Engin ástæða er til að leggja jafnréttisstarf á Norðurlöndum á hilluna. Samkvæmt fimm norrænum sérfræðingum eru kyn og loftslagsmál, þátttaka kvenna í atvinnulífinu og ofbeldi gegn konum nokkur þeirra úrlausnarefna sem norrænu ríkin standa andspænis.
Á norrænu málþingi sem haldið var í tengslum við fund kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York föstudaginn 5. mars, kynntu fimm sérfræðingar frá Norðurlöndum ýmis viðfangsefni og árangur af norrænu jafnréttisstarfi frá því að 4. kvennaráðstefna Sameinuðu þjóðanna var haldin í Peking árið 1995.
- Viðurkennum og styðjum þátttöku kvennaí fjármálalífinu sagði Lena Aag frá sænsku samtökunum Kvinna til kvinna. - Ný jafnréttisdeild Sameinuðu þjóðanna gæti gegnt mikilvægu hlutverki í því samhengi, sagði hún.
Lena Aag ræddi um hversu mikilvægt væri að taka tillit til sjónarmiða kvenna í starfi alþjóðasamtaka og í samningaviðræðum og leggja sérstaka áherslu á málefni kvenna á ófriðarsvæðum.
Konur á Norðurlöndum hafa skapað sér sess í stjórnmálum, en í minna mæli í atvinnulífinu, nema í Noregi. Það sýnir rannsóknaverkefnið Kyn og völd sem Kristín Ástgeirsdóttir kynnti.
- Hversvegna hafa konur náð fótfestu í stjórnmálum, en ekki í atvinnulífinu? Hefur valdið flust frá stjórnmálum til atvinnulífs? Hafa konur lagt of mikla áherslu á stjórnmál?, spurði Kristín.
Krístín Ástgeirsdóttir tilkynnti í fullum sal áheyrenda hvaðanæva að úr heiminum að fimmtudaginn 4. mars hefði Alþingi samþykkt lagafrumvarp sem setur skilyrði um minnst 40% hlutfall kvenna eða karla í stjórnum fyrirtækja með 50 starfsmenn eða fleiri.
Á öðru málþingi á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar þann 2. mars ítrekuðu norrænu jafnréttisráðherrarnir að forsenda jafnréttisþjóðfélags væri að það væri laust við kynbundið ofbeldi. . Norðmaðurinn Marius Råkil, framkvæmdastjóri samtakanna, Valkostur við ofbeldi (Alternativ til Vold), sýndi dæmi um meðferð fyrir ofbeldishneigða karla á Norðurlöndum.
Sjá myndskeið frá fundi með norrænu jafnréttisráðherrunum.
- Karlar verða að hafna ofbeldi gegn konum og börnum. Það er ekki hlutverk kvenna að stöðva ofbeldi karla. Jafnrétti og fjarvera alls ofbeldis ætti að vera miklvægasta efni stjórnmálanna í dag , sagði Råkil hjá Sþ á föstudag og fékk meðal annars fyrirspurn frá fulltrúa Úganda sem vildi heyra hvað væri hægt að gera til að stöðva ofbeldishneigða karla í hennar heimalandi.
Kyn og loftslagsbreytingar er einnig málefni sem verið hefur ofarlega á baugi í norrænu jafnréttisstarfi síðastliðið ár Ástæðan er sú að konur og karlar hafa ólík áhrif á umhverfið en jafnframt að loftslagsbreytingar hafa ólík áhrif á kynin..
- Jafnvel í landi þar sem við höfum tiltölulega mikið jafnrétti er erfitt að hrinda í framkvæmd loftslagsvænni jafnréttisstefnu, sagði Päivi Kannisto frá finnska utanríkisráðuneytinu.
Kannisto minnti áheyrendur úr öllum heimshornum á það sem finnski forsetinn sagði á COP15 í Kaupmannahöfn í desember síðastliðnum; að Finnar myndu vinna að því að efla jafnrétti í loftslagsstarfinu bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi.
Húsfyllir var á báðum norrænu málþingunum sem haldin voru í tengslum við fund kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York í byrjun mars. Fulltrúar hvaðanæva að úr heiminum, þar af margir frá þróunarlöndunum, komu til að heyra hvað er að gerast í jafnréttismálum á Norðurlöndum.
