Document Actions

Vignir Jóhannsson sýnir hjá Norrænu ráðherranefndinni

Eldgosið í Eyjafjallajökli er áberandi í mörgum þeirra verka sem Vignir Jóhannsson sýnir í húsnæði Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn frá 13. janúar.

09/01 2012

„Ég sæki innblástur í flæði tímans og hvaða áhrif það hefur á líf okkar. Þetta óvænta eldgos þýddi að skyndilega var ég í miðjum tímapolli, og þá getur ýmislegt gerst”, segir Vignir Jóhannsson. Mynd: Úr myndröðinni „Tímapollar" eftir Vigni Jóhannsson.

„Ég sæki innblástur í flæði tímans og hvaða áhrif það hefur á líf okkar. Þetta óvænta eldgos þýddi að ég var skyndilega í miðjum tímapolli, og þá getur ýmislegt gerst”, segir Vignir Jóhannsson um þau verk sem hann sýnir.

„Ash for cash” er listaverk þar sem aska úr Eyjafjallajökli er steypt í gler. Verkin eru á sýningunni ásamt mörgum verkum unnum í olíu.

Vignir Jóhannsson er fæddur á Íslandi en hefur starfað víða um heim, m.a. í Bandaríkjunum. Hann er með vinnustofur á Íslandi og í Danmörku og tengist norræn/dönskum listamannahópi sem starfar með Hebsgaard Glaskunst. Í Danmörku er hann aðallega þekktur fyrir stór glerverk, þar á meðal stórt speglaverk sem sýnt var á Kastrupgård árið 2011.

Auk höggmynda, ljósinnsetninga og málverka hefur Vignir Jóhannsson einnig unnið leikmyndir fyrir leikhús, sjónvarpsþætti, kvikmyndir og söfn.

Sýningin á verkum Vignis Jóhannssonar er fyrsta listsýningin sem haldin er í húsnæði Norrænu ráðherranefndarinnar Ved Stranden 18 í Kaupmannahöfn.

Tengiliðir

Louise Hagemann
Sími +45 21 71 71 41
Tölvupóstur loha@norden.org