Vilja finna orsakir elliglapa
Á næstu 35 árum má gera ráð fyrir að þeir sem glíma við elliglöp á Norðurlöndum verði tvöfalt fleiri en nú . – Við verðum að bæta lífsgæði þessa hóps og það getum við gert með auknu norrænu samstarfi um umönnun slíkra sjúklinga og rannsóknir á orsökum elliglapa, segir Siv Friðleifsdóttir formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Siv Friðleifsdóttir er formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs. Hún hefur trú á því að aukið norrænt rannsóknasamstarf geti stuðlað að því að orsakir elliglapa finnist.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Fjölgun aldraðra á næstu árum og hærri lífaldur á Norðurlöndum hefur í för með sér að fleiri en áður munu glíma við ýmsa öldrunarsjúkdóma. Jafnframt hefur fleira ungt fólk greinst með vitglöp án þess að við vitum ástæðuna.
- Við verðum að finna orsakir elliglapa. Rannsóknir á þeim verða afar mikilvægar fyrir norrænu velferðarsamfélögin í framtíðinni, segir Siv Friðleifsdóttir.
Einungis Norðmenn hafa gert áætlun vegna elliglapa
Fyrrverandi heilbrigðisráðherra Íslendinga sér möguleika á því að nýta betur fjármagn til rannsókna á þessu sviði með öflugra norrænu samstarfi Nú þegar er til staðar norrænt tengslanet sérfræðinga sem vinnur að því að þróa sameiginlegar greiningaraðferðir með fjárstuðningi frá Norrænu rannsóknamiðstöðinni. Velferðarnefnd Norðurlandaráðs heimsótti háskólasjúkrahúsið Ullevål í Ósló þegar aprílfundir Norðurlandaráðs stóðu yfir, og voru við það tækifæri upplýstir um að Noregur væri eina norræna ríkið með áætlun um umönnun sjúklinga með vitglöp og öflugar rannsóknir á því sviði.
- Við viljum skoða það besta sem verið er að gera á þessu sviði í Noregi og taka mið af því þegar forgangsmál velferðarnefndarinnar verða skilgreind 2010 að bæta lífskjör aldraðra á Norðurlöndum, segir Siv Friðleifsdóttir. Nýlegt mál í Svíþjóð þar sem eldri hjón fengu ekki að búa saman þar sem annað þeirra var sett á umönnunarstofnun vakti formann nefndarinnar til umhugsunar.
- Við verðum að finna búsetuúrræði fyrir fólk með elliglöp. Að mati Sivjar getur norrænt samstarf um bætt meðferðarúrræði jafnframt stuðlað að því að fleiri geta búið lengur heima.
Of lítil hvert um sig
Í heimsókn sinni á Ullevål fræddust fulltrúar í velferðarnefndinni einnig um möguleika á því að efla norrænt samstarf í rannsóknum á sjaldgæfum sjúkdómum. Oft er erfitt að greina slíka sjúkdóma, því lítið er vitað um þá, erfitt er að veita góða meðhöndlun og einnig er hún oft afar kostnaðarsöm. Jafnframt eru norrænu ríkin hvert um sig of lítill markaður til að lyfjaiðnaðurinn fjármagni tilraunir með nýjar meðferðir. .
- Það er mikill möguleiki á norrænum virðisauka þegar um er að ræða rannsóknir á sjaldgæfum sjúkdómum, segir Siv Friðleifsdóttir, sem hefur einnig áhyggjur af aðstæðum aðstandenda.
- Þeir eiga oft erfitt, auk þess sem sjaldgæfir sjúkdómar eru oft arfgengir, segir formaður velferðarnefndarinnar.
Tengiliðir
Beate Christine Wang
Sími
+45 33 96 04 42
Tölvupóstur
bcw@norden.org
